Evrópumót einstaklinga hófst í dag í Katowice í Póllandi en næstu tæpar tvær vikur verða tefldar 11 umferðir um Evrópumeistaratitilinn og jafnframt sæti á Heimsbikarmótinu. Sætin eru eftirsótt þar sem Heimsbikarmótið er ávallt eitt vinsælasta mótið þegar það fer fram (annað hvert ár) og jafnframt getur það verið leið til að komast á Áskorendamótið (sem er nú í gangi). Fyrsta umferðin var tefld í dag og unnu þeir Hannes Hlífar Stefánsson og Vignir Vatnar Stefánsson báðir sigur í sínum viðureignum en Hilmir Frey Heimisson og Josef Omarsson urðu að lúta í dúk.
Íslensku keppendurnir semsagt fjórir eins og sjá má á þessari klippu af Instagram Skáksambandsins:
View this post on Instagram
Vignir hafði svart gegn króatískum skákmanni, Borna Pehar (2183). Króatinn var meira og minna tilneyddur í mannsfórn eftir and-stöðulegan leik Vignir 16…f5!
Riddarinn á merkilegt nokk enga góða reiti vegna f4-framrásarinnar sem vinnur mann eftir 16.Rd2 og 16.Rg3. Króatinn lék því 16.Rg5, fórnaði manni og fékk ágætis spil. Vinningurinn var alls ekkert auðveldur og Vignir þurfti að passa sig vel í vörninni en náði að mestu að halda stjórn á skákinni eftir þetta.
Stórmeistarinn Hannes Hlífar tefldi af ákafa gegn Szymon Pozimski (2025). Hannes fórnaði manni skemmtilega í byrjuninni og fékk hættulega sókn. Hannes fékk fljót nægjanlega mörg peð fyrir manninn og ljóst í hvað stefndi þegar þrjú hvít peð voru komin á 6. reitaröð…eitthvað sem á skilið stöðumynd!
Skemmtileg staða eftir 30. leik Hannesar!
Hilmir lenti í erfiðri skák gegn Donchenko, þýskum landsliðsmanni. Hilmir fékk erfiða útgáfu af stöku peði með svart og Donchenko tefldi tæknilega hlutann vel og stöðu Hilmis hrakaði. Mannsfórn í lokin var svokallað „desperation in the station“ og dugði ekki til.
Josef tapaði sinni skák gegn frönskum alþjóðlegum meistara. Sá franski fór að taka yfirhöndina í miðtaflinu og hvítu reitirnir urðu mjög veikir hjá Josef og svartur náði gegnumbroti í kjölfarið.
Önnur umferð er tefld á morgun og hefst 15:00 að staðartíma.
















