
Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson sigraði af fádæma öryggi á Arena netskákmótinu sem fram fór í gær. Jóhann fékk alls 67 stig og var 9 stigum á undan næsta manni. Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson var í 2. sæti með 58 stig og FM Björn Ívar Karlsson í 3. sæti með 55 stig.
Alls tóku 52 skákmenn þessu bráðskemmtilega móti.
Lokastaða efstu manna
- GM Jóhann Hjartarson 67 stig
- GM Helgi Áss Grétarsson 58 stig
- FM Björn Ívar Karlsson 55 stig
- GM Bragi Þorfinnsson 53 stig
- Þorbjörn Ekhdal 44 stig
- Tómas Veigar Sigurðarson 42
- Lenka Ptácníková 42 stig
- FM Sigurbjörn Björnsson 40 stig
- FM Vignir Vatnar Stefánsson 40 stig
- Jóhann Jónsson 36 stig
Á morgun kl. 19:30 fer fram Laugó Invitational, tefldar verða 7 umferðir með tímamörkunum 5+2. Mótið er opið öllum!
FIMMTUDAGINN 2. APRÍL KL. 19:30
Laugó Invitational – Hraðskákmót 7 umferðir 5+2.
- Tengill: https://www.chess.com/live#t=1171543
- Auglýsing -












