Ísland tekur þátt í 2. deild Ólympíumótsins í netskák fer fram 14.-16. ágúst nk. Þátt taka 50 lið í 2. deild og er skipt í fimm tíu liða riðla.

Í hverri umferð tefla sex skákmenn frá hverri þjóð (2 karlar og 2 konur, strákur og stúlka 20 ára og yngri). Jafnmargir varamenn í hverjum flokki. Í hverju liði eru því sex karlar og jafn margar konur.

Í liði Íslands eru því sterkustu skákmenn og skákkonur landsins sem og okkar efnilegustu ungmenni af báðum kynjum.

Flokkur Aðalmenn Varamenn
Karl 1 Jóhann Hjartarson, stórmeistari Bragi Þorfinnsson, stórmeistari
Karl 2 Guðmundur Kjartansson, alþjóðlegur meistari Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari
Kona 1 Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
Kona 2 Hallgerður Helga Þorsteinsd., FIDE-meistari kvenna Lisseth Acevedo Mendez, alþjóðlegur meistari kvenna
Strákur Vignir Vatnar Stefánsson, FIDE-meistari Birkir Ísak Jóhannsson
Stúlka Batel Goitom Haile Iðunn Helgadóttir

Í riðli Íslands tefla meðal annars lið Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs og Króatíu. Þrjár umferðir (atskák) fara fram hvern dag og hefjast þær kl. 14, 15 og 16. Þrjú efstu liðin í hverjum riðli ávinna sér rétt til að tefla í fyrstu deild þar sem allra sterkustu landslið heims taka þátt.

Íslensku keppendurnir tefla í skákhöll TR, Faxafeni 12. Bein útsending verður frá mótinu á netinu sem verður nánar kynnt þegar nær dregur!

- Auglýsing -