Íslandsmót öldunga 2021 (+65)

    0
    1232
    Hvenær:
    12. nóvember, 2021 @ 18:00 – 21. nóvember, 2021 @ 18:00
    2021-11-12T18:00:00-01:00
    2021-11-21T18:00:00-01:00
    Hvar:
    Reykjavík
    Íslandsmót öldunga 2021 (+65) @ Reykjavík

    Íslandsmót öldunga (65+) verður haldið í annað skipti sem kappskákmót 12.-22. nóvember nk. Mótið verður haldið í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12.

    Tefldar verða sex-sjö umferðir á mótinu eftir þátttöku. Ein hálf vinnings yfirseta er leyfð en þó ekki í tveimur síðustu umferðunum.

    Dagskrá

    1. umferð, föstudagurinn, 12. nóvember 18:00
    2. umferð, laugardagurinn, 13. nóvember, kl. 13:00
    3. umferð, sunnudagurinn, 14. nóvember, kl. 13:00
    (4. umferð, fimmtudagurinn, 18. nóvember, kl. 18:00)*
    5. umferð, föstudagurinn, 19. nóvember, kl. 18:00
    6. umferð,  laugardagurinn 20. nóvember 13:00
    7. umferð, sunnudagurinn 21. nóvember 13:00

    *Ef mótið verður sex umferðir – fellur þessi umferð niður.

    Mótshaldarar áskilja sér rétt til að gera smávægilegar breytingar á dagskránni.

    Umhugsunartími: 90 mínútur auk 30 sekúndna viðbótartíma fyrir hvern leik.

    Tap verður dæmt ef keppendur koma meira en hálftíma eftir að umferð hefst.

    Mótið er opið fyrir alla 65 ára og eldri. Fædda 1956 eða fyrr.

    Þátttökugjald: 5.000 kr. á keppenda

    Verðlaun:

    1. 50.000 kr.
    2. 30.000 kr.
    3. 20.000 kr.

    Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfinu.

    Veit verða sérverðlaun (verðlaunagripir) fyrir hver fimm ár (70+, 75+ o.s. frv.).

    Oddastig

    • Flestar tefldar skákir
    • Buchholz -1
    • Bucholz
    • Sonneborn Berger
    • Innbyrðis úrslit

    Skráningafrestur er til 10. nóvember kl. 16.

    - Auglýsing -