Guðmundur Kjartansson var efstur fyrir umferð dagsins en hann gerði nokkuð öruggt jafntefli með svörtu gegn Vigni Vatnari. Hannes vann á meðan síðan fjórðu skák í röð og þeir félagar deila toppsætinu.
Athygli vakti að allar fimm sigurskákir dagsins komu með hvítu mönnunum. Veitti enda ekki af þar sem sigurskákir á svart voru orðnar ansi ansi margar!
GM Vignir Vatnar Stefánsson (3) – GM Guðmundur Kjartansson (3½)

Guðmundur tefldi nýmóðins „jafnteflisteóríu“ með svörtu gegn Katalan byrjun Vignis. Radjabov og fleiri hafa verið að tefla þetta afbrigði og þó hvítur hangi á umframpeði er virkilega erfitt að gera eitthvað úr því og Vignir fann ekki leiðir til að valda Guðmundi vandræðum.
GM Hannes Stefánsson (3) – Jóhann Ingvason (½)

Hannes vann sína fjórðu skák í röð og deilir nú efsta sætinu með Guðmundi. Jóhann tefldi Berlínarvörn og líkt og Henrik í þriðju umferðinni tefldi hann eilítið inn í styrkleika Hannesar sem hefur ótrúlega góða tilfinningu fyrir hver mennirnir eiga að fara í „pósanum“.
IM Hilmir Freyr Heimisson (2½) – FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (1½)

Flott og dýnamísk skák hjá Hilmi en hann er sterkur í svona stöðum. Lengi vel tefldi hann peði undir en hann virðist hafa góða tilfinningu fyrir dýnamískum þáttum stöðunnar í ákveðnum stöðutýpum. Ekki mótið hans Aleksandr til þessa allavega.
GM Bragi Þorfinnsson (1½) – WGM Lenka Ptácníková (2½)

Frábær skák hjá Braga í dag. Hann er góður með frumkvæðið og Philidor vörn Lenku fékk að finna fyrir því eftir slakan leik …Ha6. Bragi henti öllu liðinu í sókn og fann nokkra flotta leiki og vann sóknarskák dagsins!
GM Hjörvar Steinn Grétarsson (1½) – GM Henrik Danielsen (2)

Henrik tefldi Petroff vörn gegn Hjörvari en hann hafði tapað í sömu byrjun gegn Hannesi í mótinu. Í skák dagsins virtist svartur hafa mjög trausta stöðu en þegar betur er að gáð hafði hvítur alltaf undirtökin. Hjörvar hafði alltaf meira rými og endataflið var mun erfiðara en margur gerði sér grein fyrir. Flottur svíðingur hjá Íslandsmeistaranum.
GM Jóhann Hjartarson (1) – IM Dagur Ragnarsson (1½)

Segja má að Dagur hafi framkvæmt Harakiri í þessari skák. Miðtaflið virtist nokkurn veginn í jafnvægi þegar Dagur fórnar manni með 19…cxd5? sem virtist vera algjör óþarfi og jafnframt óljóst hvaðan bæturnar kæmu. Auðveldur dagur á skrifstofunni hjá Jóhanni sem þurfti á því að halda eftir tvær tapskákir.
Úrslit 5. umferðar


Hannes og Guðmundur eins og áður segir efstir með 4 vinninga af 5 mögulegum. Vignir og Hilmir koma næstir og verður að teljast ólíklegt að næsti Íslandsmeistari sé ekki einn af þessum þremur. Aldrei segja aldrei þó!
Pörun 6. umferðar

Allir fjórir efstu fá svart á morgun og verður fróðlegt að sjá hver leysir það verkefni best.
Allir skákirnar eru í beinni (þó með 15 mínútna seinkun) og beinar lýsingar á YouTube.
Útsendingar á netinu hefjast því ekki fyrr en kl. 15:15. Skýringar á milli 16 og 16:30.
Styrktaraðilar mótsins eru
- Hafnarfjarðarkaupstaður
- Algalíf
- Teva
- Lengjan
- Guðmundur Arason
- MótX
Tenglar
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skákvarpið
- Beinar útsendingar (Chess.com)
- BEinar útsendingar (Chess24)
- Beinar útsendingar (Chessbase)
- Beinar útsendingar (kingwatcher)















