Aleksandr-Domalchuk Jonasson vann sigur í fjórðu umferðinni á stóru opnu móti á Spáni. Adam tapaði sinni skák í Serbíu en Josef gerði gott jafntefli. Iðunn og Helgi Pétur luku leik í Póllandi.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2373) teflir þessa dagana á Open Internacional CA MONTEOLIVETE á Spáni. Aleksandr er númer 40 í styrkleikaröð af 227 keppendum.
Í fjórðu umferð fékk hann svart á spænska skákmanni Pablo Luis Aguado Doncel (2028). Aleksandr hafði svart og hagaði svolítið segli eftir vindum. Hann tefldi hvasst afbrigði gegn stigalægri andstæðing og bjó strax til vandamál fyrir hvítan til að glíma við.
Skilaði þetta sér í frekar auðveldum sigri. „Nice and smooth“ eins og Sasha sagði sjálfur.
Smooth-frasinn getur reyndar verið vandmeðfarinn eins og Maurice Ashley fékk að reyna um árið!
Hér er skák Aleksandr í dag:
Aleksandr hefur því 2,5 vinning af 4 mögulegum og er nokkurn veginn á pari. Hann mætir AFM David Galstyan (2128) frá Spáni. AFM stendur fyrir Arena FIDE Master en þessir Arena titlar eru almennt séð ekki taldir merkilegur pappír. Aleksandr mun stýra hvítu mönnunum.

Þeir bræður Adam Omarsson (1843) og Josef Omarsson (1710) tefldu fjórðu umferðina á Serbia Open í dag.
Adam hefur verið að tefla vel og mætti Liya Kurmangaliyeva (2225) frá Kazaksthan í umferð dagsins. Adam fékk ágætis tafl eftir sikileyjarvörnina en fljótlega í miðtaflinu fór að halla undan fæti eftir vel tímasetta e5-framrás hjá hvítum. Í kjölfarið kom taktík og svarta staðan hrundi.
Josef fékk hvítt á Miroljub Jevtic (1963). Josef tefldi skákina lengst af eins og herforingi og hafði mikla stöðuyfirburði og setti pressu á gamla jálkinn. Josef náði hinsvegar ekki að finna neitt rothögg og svartur einhvern veginn hékk inni í skákinni og í lokin tók Josef þráskák þegar svartur virtist kominn með hættulegt mótspil. Tölvur hefðu þó enn getað pressað hvítu stöðuna en skiljanlega tók Josef jafnteflinu.
Adam hefur 2 vinninga af 4 og mætir Serbanum Ilija Stanojevic (2133). Josef hefur 1 vinning af 4 og mætir líka Serba, Miroslav Maksimovic (2109). Áframhaldandi alvöru prógram hjá þeim bræðrum!

Iðunn Helgadóttir (1646) lauk í dag leik í B-flokki á Najdorf minningarmótinu í Varsjá ásamt Helga Pétri Gunnarssyni (1723). Iðunn hafði 3,5 vinning eftir 8 umferðir en Helgi 3 vinninga.
Í lokaumferðinn mætti Iðunn Pólverjanum Wojciech Radecki (1825) og skildu leikar jafnir. Iðunn endar með 4 vinninga og hækkar örlítið á stigum. Helgi Pétur endaði einnig vel og vann með svörtu gegn Pawel Podzorski (1625). Hann endaði einnig með 4 vinninga.














