Helgi Áss var í viðtali á Morgunvakt Rásar 1. Mynd: RÚV

Stórmeistarinn og Íslandsmeistarinn í skák, Helgi Áss Grétarsson, var í viðtali við Björn Þór Sigbjörnsson á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.

Í frétt um viðtalið á vef RÚV segir meðal annars:

Ástæða þess að Helgi Áss hætti að keppa í skák var andlegs eðlis. Hann höndlaði illa að tapa skákum og óttinn við að bíða lægri hlut setti mark sitt á líðan hans og frammistöðu. Með auknum þroska og reynslu, aðstoð sálfræðinga og útihlaupum hefur hann eflt sjálfan sig og tekst nú öðru vísi á við áskoranir.

Viðtalið í heild sinni má finna á vef RÚV.

- Auglýsing -