EM landsliða fer fram í Budva í Svartfjalllandi 11-20. nóvember. Ísland sendir lið í opnum flokki og kvennaflokki. Fram að móti verða liðsmenn kynntir til leiks hver á fætur og öðrum. Mótið hefst í dag og vel viðeigandi að enda með því að kynna til leiks reynsluboltann Hannes Hlífar Stefánsson!
EM-fararnir
- Hjörvar Steinn Grétarsson
- Hannes Hlífar Stefánsson
- Vignir Vatnar Stefánsson
- Guðmundur Kjartansson
- Hilmir Freyr Heimsson
- Olga Prudnykova
- Lenka Ptácníková
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- Lisseth Acevedo Mendez
- Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
- Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Nafn?
Hannes
Borð?
Er á 2 borði.
Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul?
Bræður mínir kenndu mér að tefla þegar ég var 5 ára.
Uppáhaldsskákmaður?
Það er Kasparov.
Hversu oft hefur þú farið á EM landsliða?
Man það ekki.
Hver verður fyrsti áskorandi Ding Liren?
Nakamura verður næsti áskorandi Ding.
Hvað heitir núverandi heimsmeistari kvenna (Google bannað!)
Veit ekki hver er heimsmeistari kvenna er það ekki Kínverji?
Hver er þín skrautlegasta sigurskák?
Skrautlegasta sigurskákin mig minnir að ég unnið Gunnar Björnsson á Skákþingi Reykjavikur 1986 í Skandínavanum. Helgi Ólafsson birti skákina í Þjóðviljanum. Hann er með svo gott minni getur örugglega munað hana! Ég náði þá að hefna fyrir fyrstu kappskákina skákina sem ég tefldi tapaði fyrir Gunnari 1982 eða var það 1983?

Athugsemd ritstjórnar
Gunnar vann Hannes Hlífar í fyrstu umferð opins flokks Skákþings Íslands árið 1981. Sagan segir að þetta hafi verið fyrsta alvöru kappskák Hannesar. Þá tefldi Hannes 6. Bb5+ gegn drekanum sem þykir almennt ekki gott. Það tók töluverðan tíma að finna skákina sem Hannes nefnir en hún reyndist i Tímanum – ekki í Þjóðviljanum.
Tengill á greina Helga í Tímanum.
Hver eru þín markmið á mótinu?
Markmið mín í mótinu er að tefla betur en ég gerði á HM öldunga.
Áfram?
Áfram gakk og vonandi verður engin morgunumferð!

















