Björn Ívar að tafli

UM ungmenna (u14-u18) fer fram í Montesilvano á Ítalíu dagana 13.-24. nóvember. Hvorki meira né minna en 12 íslensk ungmenni taka þátt. Fram að móti verða íslensku fulltrúarnir kynntir til leiks – 3-4 á dag!

Nú kynnum við til leiks fararstjórann og þjálfara íslenska hópsins, Björn Ívar Karlsson.

HM-fararnir

Nafn

Björn Ívar Karlsson

Flokkur?

Þjálfari hópsins

Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul

Pabbi og ég hef líklega verið 10 ára

Uppáhaldsskákmaður?

Capablanca

Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir HM ungmenna?

Ýmis praktísk mál varðandi skipulagið hjá hópnum og stúderingar á byrjunum sem ættu að nýtast hópnum. Ég hef líka haft það fyrir vana að reyna að læra sem mest í tungumáli þess lands sem ég er að ferðast til.


Besta skákin 

Ég tefli svo sjaldan að ég á ekki margar glæsilegar skákir. En meðfylgjandi skák var skemmtileg og endirinn ánægjulegur, eftir harða baráttu.

Hver eru þín markmið á mótinu?

Að búa þannig um hlutina að íslensku keppendurnir nái að láta ljós sitt skína.

Eitthvað að lokum?

Áfram Ísland!

- Auglýsing -