Hjörvar Steinn Grétarsson (2516) varð hlutskarpastur á Íslandsmótinu í Slembiskák sem haldið var á Center Hotels Plaza í boði Green Diamond International Footwear. Það voru strákarnir í Chess After Dark (CAD) sem sá um mótahaldið.

Eftir fyrri keppnisdag (föstudag) voru bræðurnir Helgi Áss (2377) og Andri Áss Grétarssynir (2186) er efstir og jafnir með 3½ vinning eftir fjórar umferðir. Sigurbjörn Björnsson (2328) hafði 3 vinninga og Íslandsmeistarinn í Fischer-skák Hjövar Steinn var fjórði með 2½ vinning.


Á laugardeginum voru tefldar umferðir 5-9 og svo fóru fjórir efstu í undanúrslitaeinvígi eins og venjan hefur verið á CAD-mótum.

Gangur mála á laugardeginum varð aldeilis óvæntur. Bræðurnir Andri Áss og Helgi Áss virtust vera í skínandi málum en þeir Magnús Pálmi Örnólfsson og Björn Þorfinnsson voru í banastuði og unnu sig upp úr sætum sex og sjö og upp í topp 4. Magnús vann alla nema Hjörvar og Björn hreinsaði daginn og endaði meira að segja efstur á mótinu!

Hjörvar hélt velli á þessum seinni keppnisdegi og endaði í öðru sæti og Sigurbjörn hélt einnig velli og munaði þar mest um hálfan vinning sem náðist gegn Gauta Páli sem mistókst að máta Sigurbjörn með biskup og riddara innan 50 leikja!

Gauti missti hér af 70.Ba4+! sem vinnur auðveldlega. Þess í stað vakti hann upp drottningu og þurfti að reyna að máta með biskup og riddara.

Hægt að sjá lokin á klippu hér.

Bræðurnir Andri og Helgi Áss misstu flugið en spennan fyrir lokaumferðina var gríðaleg. Möguleiki var að fjórir skákmenn yrðu jafnir í 3-6. sæti og hefði þá þurft armageddon bráðabana til að finna hverjir kæmust í undanúrslit.  Til þess kom ekki og Magnús Pálmi tryggði sig síðastur inn í undanúrslit með sigri á Gauta Páli. Andri Áss lék mjög illa af sér gegn Birni Þorfinnssyni og undanúrslit klár.

Undanúrslit voru því Björn gegn Magnúsi Pálma annars vegar og svo Hjörvar gegn Sigurbirni hinsvegar. Björn og Hjörvar myndu fá tvisvar hvítt í þriggja skáka einvígjum, „CAD-special“ sem hefur mælst vel fyrir.

Björn ÞorfinnssonMagnús Pálmi (undanúrslit)

Björn varð fyrri til í jafnteflislegu endatafli. Magnús lenti í að láta biskup Björns valda hálfhring riddarans eftir…

34…Rxa4? 35.Bd4! og Björn vann í peðaendatafli.

Björn tefldi seinni skákina skínandi vel með svörtu og vann eftir flotta sóknartilburði. Björn endaði með peð á c2 reitnum og máthótun í borði, merkilegt nokk hafði Björn náð því nákvæmega sama í skák á móti Sigurbirni fyrr á mótinu.

Björn því fyrstu í úrslitin.

Hjörvar Steinn GrétarssonSigurbjörn Björnsson (undanúrslit)

Sigurbjörn tefldi djarft í fyrri skákinni og fórnaði drottningu sinni fyrir spil. Hjörvar varð þó ofan á í flækjunum og hafði betur.

Hjövar kláraði dæmið í seinni skákinni

14…Hxf3! var feykisterkur 15.gxf3 Rh4 og hvítur kemur litlum vörnum við. 16.Bxh7+ Kxh7 17.0-0-0 var þó stórskemmtileg varnartilraun!

Hjörvar því kominn í úrslitin.

SigubjörnMagnús Pálmi (þriðja sætið)

Lykilskákin í þessu einvígi varð önnur skákin. Hinar skákirnar enduðu með jafntefli. Sigurbjörn náði að verjast manni yfir hættulegi spili Magnúsar Pálma og tryggði sér svo bronsið.

Sigurbjörn væntanlega sáttur, fékk boð á mótið þegar forföll voru tilkynnt og sama má segja um Magnús Pálma sem tefldi sína fyrstu slembiskák á föstudeginum og þurfti hraðnámskeið í hvernig á að hrókera í Slembiskák! Magnús Pálmi virðist nokkuð fljótur að læra miðað við árangurinn!

Björn ÞorfinnssonHjörvar Steinn  (úrslitaviðureign)

Fyrsta skákin var æsispennandi. Hjörvar gaf skiptamun til að opna kóngsstöðu Björns.

Björn þorði ekki að taka og lék 22.He4? sem reyndist tapleikur. Tölvurnar vilja taka hrókinn 22.Rxe8 Dc6 og svo leggja á flótta 23.Kf1. Staðan þó enn flókin.

Björn náði ekki nægjanlega góðum færum í skák númer tvö. Hann fékk örlítið betri en náði ekki að nýta það og Hjörvar komst í vænlegt endatafl. Björn var kominn í taphættu en náði að framlengja einvígið með því að finna vörn í mislitum biskupum.

Bjössi fékk því einn lokaséns á að setja einvígið í Armageddon skák. Björn með hvítt byrjaði þokkalega og hafði fína stöðu en 9.e4?! virtist snúa taflinu Hjörvari í vil og hann missti aldrei tökin og tryggði sér titilinn.

Gott mót hjá Bjössa sem endaði með 7 af 9 í undanmótinu og var ekki langt frá því að stríða Hjörvari í úrslitunum.

Sigurvegarinn var hinsvegar Hjörvar Steinn Grétarsson sem varði titil sinn frá því í fyrra, glæsilega gert!

Verðlaunafé var eftirfarandi í boði GREEN DIAMOND INTERNATIONAL FOOTWEAR.

  • 1. 165.000 – Hjörvar Steinn Grétarsson
  • 2. 110.000 – Björn Þorfinnsson
  • 3. 55.000 – Sigurbjörn Björnsson

Glæsilegt mótahald sem endranær hjá CAD, reynslan verður alltaf meiri og betri og eins og af öllum mótum kemur líka lærdómur um það sem betur mætti fara. Vonandi er kominn fastur sess á þetta skemmtilega mót enda slembiskákin með eindæmum skemmtileg!

Gunnar Björnsson tók saman sögu mótsins:

Ár Íslandsmeistari Mótshaldari Slóð
2023 Hjörvar Steinn Grétarsson CAD https://skak.is/2023/12/03/hjorvar-steinn-gretarsson-islandsmeistari-i-slembiskak-eftir-skemmtilegt-mot/
2022 Hjörvar Steinn Grétarsson CAD https://skak.is/2022/11/28/hjorvar-steinn-islandsmeistari-i-fischer-slembiskak-2/
2021 Ekki haldið
2020 Hjörvar Steinn Grétarsson SÍ (netið)
2019 Jón Viktor Gunnarsson SSON
2018 Hjörvar Steinn Grétarsson
2017 Ekki haldið
2016 Ekki haldið
2015 Björn Ívar Karlsson TR (óopinbert)
2014 Guðmundur Kjartansson TR (óopinbert)
2013 Ekki haldið
2012 Ekki haldið
2011 Ekki haldið
2010 Ekki haldið
2009 Ekki haldið
2008 Henrik Danielsen Hellir – netið (óopinbert)

 

- Auglýsing -