Íslandsmót 50 ára og eldri

    0
    523
    Hvenær:
    8. febrúar, 2024 @ 18:00 – 9. febrúar, 2024 @ 22:00
    2024-02-08T18:00:00-01:00
    2024-02-09T22:00:00-01:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    3000
    Tengiliður:
    Skák
    Íslandsmót 50 ára og eldri @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Íslandsmót 50 ára og eldri  fer fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur dagana 8.-9. febrúar nk. Tefld atskák – en ekki kappskák.

    Keppnisrétt eiga allir skákmenn 50 ára og eldri (fæddir 1974  eða fyrr).

    Tefldar verða atskákir með tímamörkunum 15+2.

    Tefldar verða 7 eða 9 umferðir eftir fjölda þátttakenda.

    Endanleg ákvörðun um umferðarfjölda verður tekin að loknum skráningarfresti.

    Þátttökugjöld eru kr. 3.000

    Umferðartafla

    Með fyrirvara um fjölda keppenda.

    • Umferð 1-4 Fimmtudagurinn, 8. febrúar, kl. 18.00
    • Umferð 5-9 Föstudagurinn, 9. febrúar, kl. 18.00

    Verðlaun

    1. 30.000 kr.
    2. 15.000 kr.
    3. 10.000 kr.

    Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri en jafnir í verðlaunsætum. Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.

    Skráningarfrestur er til 4. febrúar kl. 23:59

    Ef mótið gengur vel í ár er líklegt að það verði haldið áfram með þetta – hvort sem fyrirkomulagið yrði áfram það sama. Þess má geta að aðalhvatamaður þessa móts, Þorsteinn Þorsteinsson, stóð fyrir óformlegri könnun þar sem niðurstaðan var atskák í ár.

     

    - Auglýsing -