Það eru líklegast ekki margir sem hefðu fyrirfram tippað á Wei Yi sem sigurvegara á Tata Steel Masters í Wijk aan Zee árið 2024. Kínverjinn kom mjög á óvart og vann eftir æsispennandi keppni, bráðabana og drama.
Fyrir lokaumferðina voru Indverjarnir Dommaraju Gukesh og Vidit ásamt Úzbekanum Nodirbek Abdusattorov, heimamanninum Anish Giri og Wei Yi efstir með 7,5 vinning af 12 möguegum.
Lokaumferðin varð vægast sagt mögnuð með baráttutaflmennsku á nánast öllum borðum…nema hjá blessuðum Ding Liren sem vildi greinilega komast heim sem fyrst!
Wei Yi var fystur að stimpla sig inn í umferðinni. Hann tefldi nánast fullkomna skák gegn Vidit og gerði þar með út um vonir Vidit á mótinu og svipti hann jafnframt því sæmdarheiti að vera stigahæsti Indverjinn…sem er nú sjálfur Viswanathan Anand!
Taflmennska Wei Yi í þessari skák var frábær, 4 í acl (average centipawn loss) og nánast hver einasti leikur var besti leikurinn samkvæmt tölvunum.
Giri sýndi eiginlega strax í 7. leik gegn Max Warmerdam að hann ætlaði sér sigur
g4-framrás í anda Björns Þorfinnssonar! Giri fékk fín sóknafæri, missti aðeins þráðinn en náði sókninni aftur á gott skrið. Lét svo vaða með góðri fléttu
30.Hxf7! Dxf7 31.g6 og svartur er varnarlaus.
Gukesh þurfti einnig sigur með svörtu og það var honum kannski til happs að Maghsoodloo var ekki í stuði fyrir neinar friðarpípur.
Tölvunum hugnaðist ekki leikur Íranans en Maghsoodloo lék hér 16.Rxf7?! og fór í sókn. Gukesh virtist hafa vörnina alveg á hreinu og hélt betra tafli allt þar til…
…Magshoodloo fékk mögulega á að finna sturlaðan tölvuleik 30.b3!! sem heldur taflinu í dýnamísku jafnvægi, allt getur gerst! 30…Hxb3? myndi t.d. leyfa 31.Ra4! Íraninn fann þetta ekki og Gukesh hafði betur.
Fjórði maðurinn inn í bráðabana varð svo Abdusattorov. Hann vann mikinn baráttusigur gegn Donchencko þar sem Úzbekinn varð að fórna skipatmun til að halda vinningssénsum sínum lifandi, það tókst og hafði hann svo betur í drottningarendtafli.
Niðurstaðan því fjórir jafnir og efstir. Þeir tefldu bráðabana, fyrst undanúrslit og svo úrslit.
Gukesh fór í úrslit eftir að hafa unnið Giri 2-1. Giri tók fyrstu hraðskákina en Gukesh svaraði og vann loks í sudden-death skákinni.
Wei Yi lagði Abdusattorov í seinni skákinni og alls 1,5-0,5
Úrslitaviðureignin var því Wei Yi gegn Gukesh og þar vann Wei Yi aftur 1,5-0,5 eftir að hafa unnið seinni hraðskákina. Lokin má sjá í myndbandinu að neðan.
Magnaður sigur hjá Wei Yi. Segja má að hann sé gleymda undrabarnið en Wei Yi var á sínum tíma talinn líklegur arftaki Magnus Carlsen. Wei Yi skaust upp á stjörnuhimininn á svipuðum hraða og Carlsen ef tekið er mið af elóstigum. Kínverjinn varð raunar yngsti skákmaður sögunnar til að fara yfir 2700 elóstig! (Í úrslitum mætti hann yngsta skákmanni sögunnar til að fara yfir 2750 elóstig)
Eftir hraða uppsveiflu kom tímabil stöðnunar og svo einfaldlega tefldi Wei Yi minna. Einhver þreyta líklegast komið í hann, svo COVID og eitthvað var hann í námi. En nú virðist hann vera kominn aftur! Hann er kominn í topp 10 í heiminum og ef miðað er við þetta mót og taflmennskuna er hann til alls líklegur.
Endaspretturinn var frábær þar sem hann fék 4,5 vinning úr síðustu 5 skákunum!
Viðtal við sigurvegarann
Staðan:

Í áskorendaflokki var það Indverjinn Mendonca sem vann sig í meistaraflokkinn að ári. Hann átti fínan endasprett og skildi Marc’andria Maurizzi eftir með sárt ennið.
Útsending lokaumferðarinnar
Tata Steel er eiginlega alltaf eitt skemmtilegasta mót ársins. Samsetningin gerir það að verkum að skákirnar verða skemmtilegar, mótshaldarar vilja enga „jafnteflismenn“ og því fáum við ekki sömu leiðindin og virða oft verða í elítumótunum. Carlsen verður vafalítið með að ári og verður gaman að sjá hvað hann gerir gegn vaxandi ógn nýjustu kynslóðarinnar á þessu sviði!














