Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli gegn FIDE meistaranum Pawel Sowinski (2392) í 5. umferðinni á „Skákvikunni í Przeworsk“, lokuðum GM-flokki sem fram fer í Póllandi.

Hannes hafði svörtu mennina og var aldrei í neinum vandræðum og jafnaði taflið nokkuð auðveldlega. Vinningsmöguleikar voru hinsvegar ekki nægjanlegir og Hannes varð að sætta sig við jafntefli.

Hannes hefur nú 2,5 vinninga úr 5 umferðum og framundan er tvöföld umferð á sunnudeginum. Hannes mætir goðsögninni Oleg Romanishin í fyrri umferðinni.

- Auglýsing -