Þriðja keppnistímabil Heimsdeildarinnar í netskák hófst formlega í dag, 1. okótber. Gefin hefur verið út pörun í fyrstu umferð og mætir Team Iceland sterku liði Argentínumanna á sunnudaginn kl. 20.

Team Iceland mætti Argentínu á undirbúningstímabilinu og var niðurstaðan þá stórsigur í leifturskákinni en sorglegt tap í hraðskákinni. Búast má við því að Argentína mæti með talsvert sterkara lið að þessu sinni, enda um að ræða formlega keppni, en ekki vináttukeppni líkt og í haust. Allir eru því hvattir til að mæta til leiks og taka þátt í því að kveða niður Argentínudrauginn!

Hvenær?

Keppnin verður með sama sniði og undanfarnar vikur, en fyrst er tefld leifturskák og hefst sú viðureign kl. 20:00. Því næst er tefld hraðskák og hefst sú rimma kl. 20:20. Ekki er skilyrði að tefla í báðum keppnum, keppendur geta valið að tefla aðeins hraðskákina, eða öfugt.

Athugið að keppendur þurfa að skipta um mót á milli viðureigna, en einfaldast er að nota “Tournaments” flipann á Chess.com til þess.

HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?

Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.

Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!

Dagskráin

Umferðatafla og pörun keppnistímabilsins

Endanleg pörun liggur nú fyrir. Fyrirkomulagið er þannig að pörun er gefin út fyrir hverja viku fyrir sig (sjá að neðan). Hver viðureign skal svo fara fram innan þess tímaramma sem þarna kemur fram. 1. umferð skal þannig tefld í vikunni 1.-7. október en nákvæm tímasetning er samkomulagsatriði.

v/hefst v/lýkur Vika nr. Umferð Teflum við Fer fram
01. okt 07. okt 1 1 Argentina Live Chess 07. okt kl. 20
08. okt 14. okt 2 2 Srbija Tim
15. okt 21. okt 3 Frí
22. okt 28. okt 4 3 Team Ukraine
29. okt 04. nóv 5 4 Team Russia
05. nóv 11. nóv 6 Frí
12. nóv 18. nóv 7 5 Ecuador Live Chess
19. nóv 25. nóv 8 6 Team Slovakia
26. nóv 02. des 9 Frí
03. des 09. des 10 7 Team Peru
10. des 16. des 11 Adjustments
17. des 23. des 12 8 Úrslit 4 eftstu og 4 neðstu
24. des 30. des 13 Frí
31. des 06. Jan 14 9 Úrslit 4 eftstu og 4 neðstu
07. Jan 13. Jan 15 Frí
14. Jan 20. Jan 16 10 Úrslit 4 eftstu og 4 neðstu


Deildin: Hraðskák og Leifturskák

Hraðskákdeildin og leifturskákdeildin eru aðskildar keppnir. Hraðskákin er tefld í þremur deildum (við teflum í 1. deild) en leifturskákin er tefld í einni deild þar sem lið úr öllum deildum hraðskákkeppninnar taka þátt. Oftast mætum við sama liðinu í hraðskák og leifturskák en á því eru öfráar undantekningar þegar við teflum leifturskák við lið úr neðri deildunum.

Skoða má stöðuna í 1. deild LCWL hér: https://docs.google.com/spreadsheets/d/16JRaTtcQFuGwgaP8uGll_19RNxGGhARsakE62oWmtuk/edit#gid=950728376

Skoða má stöðuna í leifturskákinni hér: https://docs.google.com/spreadsheets/d/148fFcVprfkq43vkVPh8cEL9y_uIR5C_O0IvdDgCXKD4/edit#gid=1216857011

1. deild (lágmark 20 borð)
Srbija Tim
Team Russia
Team Ukraine
Team Peru
Argentina Live Chess
Team Slovakia
Ecuador Live Chess
Iceland

 

 

- Auglýsing -