Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson vann sína skák í fjórðu umferð á opnu móti í Slóvkíu. Helgi hefur nú 3 vinninga 4 mögulegum.
Andstæðingur Helga var FIDE meistarinn Bayarjavkhlan Delgerdalai (2272). Þokkalega stafaruglið þarna á ferð en Bayarjavkhlan er tékkneskur þó líklegast liggi uppruni hans einhversstaðar annarsstaðar á heimskringlunni!
Helgi beitti grjótgarðinum og ætlaði sér greinilega að tefla til vinnings með svörtu. Því miður virðist hafa orðið DGT-villa í útsendingunni og heimamenn ekki haft rænu á að laga villuna. Því eru lok skákarinnar í „bullinu“ eins og unga fókið myndi segja! Það breytir því ekki að Helgi vann eins og chess-results staðfestir!
Helgi hefur 3 vinninga af 4 og taflmennskan heldur áfram á morgun.
- Auglýsing -















