Önnur umferð Ólympíuskákmótsins hefst kl. 13:15 í dag! Andstæðingarnir eru Indland í opnum flokki, sem margir spá sigri í keppninni, en b-sveit Ungverjaland í kvennaflokki!
Opinn flokkur
Sveit Indverja er hrikalega sterk. Sjálfur áskorandinn, Gukesh, á fyrsta borði. Á öðru borði er Arjun Erigaisi, fjórði stigahæsti skákmaður heims. Þeír skákmenn á topp 11 í sveitinni. Sveitin er sú næstasterkasta sé miðað við meðalstig. Aðeins Bandaríkjamenn eru stigahærri. Til samanburðar er íslenska sveitin sú 46. sterkasta.
Guðmundur Kjartansson, sem tapaði illa í gær, hvílir í dag. Vignir Vatnar Stefánsson, teflir sína fyrstu skák á Ólympíuskákmóti og jafnframt sína fyrstu skák á fyrsta borði fyrir landslið Íslands.
Indverjanir hvíla Pragga á móti Íslendingum.

Kvennaflokkur

Liðið í kvennaflokki mætir b-sveit Ungverjalandi. Þrátt fyrir að vera b-sveit er sveitin grjóthörð og er sú 31. sterkasta og er eingöngu skipuð titilhöfum. Íslenska sveitin er nr. 72 í stigaröð liða.
Guðrún Fanney Briem, yngsti keppandi Íslands í Ólynmpíusögunni, hvílir í dag. Reynsluboltinn Lenka Ptácníková kemur inn í liðið en hún hvíldi í gær.















