Bikarsyrpa stúlkna 2024-2025 – 1. mót

    0
    483
    Hvenær:
    9. nóvember, 2024 @ 13:00 – 16:00
    2024-11-09T13:00:00-01:00
    2024-11-09T16:00:00-01:00
    Hvar:
    Rimaskóli
    Rósarimi
    112 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    Bikarsyrpa stúlkna 2024-2025 - 1. mót @ Rimaskóli | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Fyrsta mót í nýrri bikarsyrpu stúlkna hefst laugardaginn 9. nóvember kl. 13. Það er Kvennaskáknefnd Skáksambands Íslands sem stendur fyrir mótaröðinni, í samstarfi við skákfélög. Mót syrpunnar verða fjögur talsins og tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska kerfinu með tímamörkunum 5 3 á skák.

    Fyrsta mótið er unnið í samvinnu við Skákdeild Fjölnis, og fer fram í Rimaskóla, en í skákdeild Fjölnis má finna einn stærsta hóp skákstúlkna á landinu. Mótið er opið öllum stúlkum á grunnskólaaldri, og teflt verður í tveimur flokkum: 1.-4. bekkur og 5.-10. bekkur. Hressing verður í boði um miðbik móts.

    Verðlaun í eldri flokki:

    1. verðlaun: 3 einkatímar hjá Skákskóla Íslands auk áskriftar á vignirvatnar.is
    2. verðlaun: 2 einkatímar hjá Skákskóla Íslands auk áskriftar á vignirvatnar.is
    3. verðlaun: Áskrift hjá vignirvatnar.is

    Verðlaun í yngri flokki:

    1. verðlaun: 3 einkatímar hjá Skákskóla Íslands auk áskriftar á chess.com
    2. verðlaun: 2 einkatímar hjá Skákskóla Íslands auk áskriftar á chess.com
    3. verðlaun: Demantaáskrift á chess.com

    Markmið mótaraðarinnar er að efla tengingu milli stúlkna á höfuðborgarsvæðinu og út á landi. Vegleg verðlaun verða veitt samanlögðum sigurvegurum mótaraðarinnar við lok 4. móts. Næsta mót í mótaröðinni fer fram 11. janúar 2025 í samstarfi við skákdeild KR!

    Skráning fer fram í gegnum skráningarform hér að neðan. Hlökkum til að sjá ykkur!

    Skráningarform

    - Auglýsing -