Heiðursfélagi TV Arnar Sigurmundsson (t.v.) var árið 2023 kjörinn heiðursfélagi Taflfélags Vestmannaeyja. Það var Karl Gauti Hjaltason þáverandi formaður TV sem tilkynnti þessa heiðursnafnbót en Arnar er þriðji einstaklingurinn sem hana hlýtur. — Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson

Hraðskákmeistaramót Vestmannaeyja 2025 verður haldið fimmtudaginn 1. maí nk. kl. 13:00 í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9.

Tímamörk verða 5 mínútur á hvorn keppanda + 3 sekúndur við hvern leik, og má reikna með að hver skák taki um 10–12 mínútur.

Mótið gefur FIDE-hraðskákstig (Blitz rating points).

Skráning keppenda fer fram hjá skákstjóra, Sæmundi Einarssyni, með tölvupósti á netfangið saemi.einars@gmail.com, eða á staðnum frá kl. 12:30 á keppnisdaginn.


Fréttir frá Taflfélagi Vestmannaeyja

Aðalfundur Taflfélagsins var haldinn þann 24. mars síðastliðinn.
Í skýrslu stjórnar kom fram að starfsemi félagsins hafi verið í föstum skorðum á liðnu starfsári. Skákþing Vestmannaeyja 2025 og seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga 2024–25 var þá nýlokið, en Taflfélag Vestmannaeyja tók þátt með þrjú keppnislið.

Skákkennsla fyrir ungmenni í Grunnskóla Vestmannaeyja á vegum félagsins fer fram einu sinni í viku, bæði á haust- og vorönn, í skákheimilinu að Heiðarvegi 9.

Karl Gauti Hjaltason, sem verið hefur formaður TV síðan 2023, gaf ekki kost á sér til endurkjörs eftir að hann var kjörinn alþingismaður 30. nóvember síðastliðinn. Í hans stað var Hallgrímur Steinsson kjörinn formaður og gjaldkeri félagsins. Sæmundur Einarsson var kjörinn varaformaður og ritari, og aðrir í stjórn eru Sigurjón Þorkelsson, Auðunn Haraldsson og Ágúst Ómar Einarsson.

Á árinu 2026 verða 100 ár liðin frá stofnun Taflfélags Vestmannaeyja. Í afmælisnefnd félagsins voru kjörnir fyrrverandi og núverandi formenn TV: Arnar Sigurmundsson, Karl Gauti Hjaltason og Hallgrímur Steinsson. Þeir munu leggja fram tillögur um hvernig félagið hyggst minnast þessa merka áfanga á afmælisárinu.

- Auglýsing -