Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson tekur þátt í 2nd GM tournament „Hotel Stockholm North by First Hotels Young Talents“ sem haldið er í Upplands Väsby rétt fyrir utan Stokkhólm í Svíþjóð ásamt alþjóðlega meistaranum Aleksandr Domalchuk-Jónasson.
Flokkur Vignis er tvöföld umferð allir við alla (double round robin) þar sem 6 sterkir keppendur tefla tvisvar hvor gegn öðrum — alls 10 umferðir.
-
Vignir er stigahæstur í flokknum með 2536 en flokkurinn annars nokkuð jafn.
-
Eftir tvær fyrstu umferðir hefur Vignir náð 1,5 vinningum (1 sigur og 1 jafntefli) og deilir toppsæti mótsins.
Í fyrri skák dagsins mætti Vignir fyrrverandi norska landsliðsmanninum Tor Frederik Kaasen (2472) og vann ótrúlega auðveldan sigur. Kaasen var í norska liðinu sem tapaði fyrir því íslenska á EM 2023 þrátt fyrir að Carlsen tefldi á fyrsta borði. Miðað við skákina í dag þarf hann að laga ýmislegt til að komast aftur í liði! Vignir lék venjulegum leikjum og fékk svo riddaragaffal án þess að þurfa að hafa fyrir miklu, ótrúlega slök skák hjá Norðmanninum.
Vignir hafði aftur svart í seinni skákinni. Þar mætti hann heimamanninum Jung Min Seo og sá sænski þorði ekki í Frakkann hjá Vigni og þrálék. Hefði verið gaman að sjá Svíann þora þar sem Vignir var klárlega að tefla afbrigði sem hann hefur skoðað á síðunni sinni góðu, VignirVatnar.is.
Semsagt fínn dagur hjá Vigni.
Á sama tíma tekur alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jónasson þátt í lokuðum flokk þar sem hægt er að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Aleksandr er einn af þremur IM í flokknum og þriðji stigahæstur.
-
Þar eru 10 keppendur sem tefla allir við alla
-
Aleksandr missteig sig í fyrstu umferð en vann í annarri umferð og hefur 1 vinning úr 2 skákum.
Í fyrri skákinni mætti Aleksandr einum af hinum þremur alþjóðlegu meisturnum. Í miðtaflinu fékk Aleksandr dauðafæri eftir 24.Rxd5??
Aleksandr svaraði að bragði með 24…Re4? eðlilegur leikur en þegar 24…Rxd5 25.Dxd5 Bb1!! er í boði þá fær sá leikur spurningamerki! Okkar maður lenti því í staðinn peði undir í endatafli og náði ekki að halda því.
Í seinni skákinni mætti Aleksandr lang stigalægsta manni flokksins, Þjóverjanum Wenzel Birger (1989). Þjóðverjinn er þrátt fyrir það CM fyrir afrek í „den“. Sasha náði góðu taktísku skoti á h6 og varnir Þjóðverjans hrundu.
Við fylgjumst áfram með frammistöðu okkar manna í Stokkhólmi og óskum þeim góðs gengis í komandi umferðum!


















