Tryggvagata 12
101 Reykjavík
Ísland
VignirVatnar.is heldur áfram með Le Kock mótaröðina í samvinnu við Le Kock og Ölvisholt. Fimmta mótið fer fram fimmtudagskvöldið 4. september kl 19.30 á Le kock. (Tryggvagata 14, 101 Reykjavík). Hliðra þarf til af hinum venjulegu miðvikudögum vegna Haustmóts TR.
Fyrsta mótið fór fram í maí þar sem stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson varð hlutskarpastur. Mót númer tvö vann Vignir Vatnar sjálfur eins og þriðja mótið. Róbert Lagerman tók svo fjórða mótið.
Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 og á öllum mótunum verða verðlaun eftirfarandi:
1. 60,000kr + Gjafakarfa frá Innnes
3. 20,000kr + Gjafakarfa frá Innnes
Efsti stigalausi: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes
Efsta konan: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes
Stigagjöfin verður með Eurovision stigakerfi.
Stig í mótaröðinni eftir fjögur mót
Hægt er að sjá stöðuna á Google Sheets
12 efstu keppendur á samanlögðum stigum (6/8 bestu mótum gilda) tefla svo til úrslita í beinni útsendingu, þar verða verðlaunin eftirfarandi:
- X TBA
- X TBA
- X TBA
Þátttökugjald á mótið er 3.000kr
Áskrifendur VignirVatnar.is fá frítt í mótið!
Kennitala: 570418-2030
Reikningsnúmer: 0133-26-013982
Mótið er opið fyrir öllum en keppendur undir 15 þurfa að vera með forráðamann með sér.
Hlökkum til að sjá ykkur á þessum frábæra veitingastað!
Kær kveðja, Le Kock og VignirVatnar.is.