Ritstjórn Skák.is óskar öllum skák- og skákáhugamönnum gleðilegra jóla! Eins og venjulega verður nóg að gera fyrir skákþyrsta um jólin. Fyrir skákkonur er Íslandsmót kvenna í hraðskák hápunkurinn – en fyrir fjöldann væntanlega Ríkharðsmótið sem fram fer 28. desember Svo geta allir fylgst með Vigni að tafli í Doha en sú hátíð hefst annan dag jóla.
Helstu mót:
- 27. desember, kl. 14:00: Íslandsmót kvenna í hraðskák tefldar við glæsilegar aðstæður í Kjarval þann 27. desember kl. 14. Léttar veitingar
- 28. desember, kl. 14:00: Ríkharðsmótið – jólahraðskákmót TR. Teflt til minningar um Rikka. Skákmenn hvattir til að fjölmenna!
- 29. desember, kl. 19:00: Jóla- og áramótaskákmót TG.
Eins og venjulega verður öflug starfsemi fyrir norðan. Bæði SA og Goðinn eru með jólaskákmót. Mótin verða kynnt betur á Skák.is á milli jóla og nýars.
Ritstjórn vill sérstaklega er að benda á HM í at- og hraðskák sem fram fer Doha í Katar 26.-30. desember. Flestir sterkustu skákmenn heims taka þátt með Magnús Carlsen næstfremstan í flokki. Atskákin fer fram 26.-28. desember og hraðskákin 29.-30. desember.
Fremstur í flokki er Vignir Vatnar Stefánsson. Skáksamband Íslands styrkir myndarlega við þátttöku Vignis auk nokkurra velgjörðarmanna Vignis.
Áfram Vignir!
Gleðileg jól!














