Allar skákir í opna flokknum á Áskorendamótinu á Kýpur enduðu með jafntefli í dag. Eina vinningsskák dagsins kom í kvennaflokki en þar náði Vaishali Rameshbabu að auka við forskot sitt í kvennaflokki og hefur nú vinningsforskot. Vaishali að standa sig betur en próðir hennar, Pragg, en engu að síðu magnaður árangur hjá þeim báðum. Fyrstu systkinin til að komast á áskorendamót. Sindarov gæti fræðilega klárað dæmið í næstu umferð í opna flokknum en hann hefur sem fyrr tveggja vinninga forskot.

Kíkjum á áhugaverðar skákir dagsins í opna flokknum.

Caruana – Sindarov 

Caruana reyndi að setja pressu á Sindarov í tæknilegri stöðu þar sem hann treysti á mátt kantpeðs síns á a-línunni til lengri tíma. Sindarov varðiast af miklu öryggi, fórnaði manni fyrir peðin sem Caruana átti eftir og hrókur og riddari gegn hrók dugir ekki til á þessu keppnisstigi þannig að Caruana reyndi ekki einu sinni við það. Jafntefli var það og Sindarov færist nær settu marki.

Giri – Esipenko

Anish Giri er oðinn sá eini sem á möguleika á að ná Sindarov. Hann varð eiginlega að leggja Esipenko að velli í dag. Hollendingurinn fékk örlítið betra en náði ekki að búa til nægjanleg vandamál í tæknistöðu til að knésetja Rússann.

Jafntefli varð í hinum skákunum og Sindarov hefur nú 8,5 vinning af 11 sem er +6 skor en Giri hefur 6,5 vinning, +2 með litla möguleika…Sindarov þarf að misstíga sig verulega og Giri að vinna innbyrðis skák þeirra.

Kvennaflokkur:

Vaishali náði einu vinningsskák dagsins þegar hún lagði þá rússnesku Goryachkina að velli. Í miðtaflinu varð hrókurin Goryachkina skyndilega strandaglópur á e5 reitnum og skiptamunur tapaðist. Þessi e5 reitur svo sannarlega áhrifavaldur hjá Goryachkina sem missti af auðveldum vinningi með taktík á þessum reit í fyrstu umferð gegn Lagno.

Eftir þessar umferð hefur Vaishali 7 vinninga en Muzychuk hefur 6 vinninga ásamt Zhu Jiner og svo tvær með 5,5 vinninga. Vaishali og Jiner mætast í næstu umferð þannig að flækjurnar gætu haldið áfram!

Úrslit dagsins:

Staðan:

Frídagur er á morgun 10. apríl en 11. umferðin verður tefld 11. apríl á laugardag.

Tenglar:

Um mótið:

Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!

Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano CaruanaHikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei YiPraggnanandhaa RJavokhir SindarovAndrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.

Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu JinerTan ZhongyiAleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju WenjunAnna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.

- Auglýsing -