Að loknum sex umferðum í Áskorendaflokki Skákþings Íslands er Óskar Víkingur Davíðsson enn með forystu þrátt fyrir jafntefli í umferð kvöldsins. Tvíburarnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkissynir styrktu stöðu sína í toppbaráttuni með sigrum í sínum skákum og sama má segja um Markús Orra Óskarsson sem vann sína skák gegn Birki Hallmundarsyni sem er búinn að eiga gott mót. Algjörlega vonlaust að spá of mikið í spilin á þessum tímapunkti og morgunljóst að lokaumferðirnar munu hafa mikið vægi!
Á efsta borði hafði Óskar Víkingur hvítt gegn Adam Omarssyni. Óskar virtist vel undirbúinn og Adam beitti Pirc-vörn sem ritstjórn er alls ekki hliðholl að beita með svörtu að staðaldri. Óskar fékk strax betra tafl og 18. leikur svarts 18…Da5?? var ekki góður.
Óskar fann refsinguna, 19.Dh2! sem setur á biskupinn á h8 og hótar Bc7. Í raun hefði þetta átt að nægja til sigurs en í stað þess að herða skrúfurnar leyfði Óskar andstæðingi sínum að komast á ótrúlegan hátt í endatafl með mislitum biskupum sem svartur gat bjargað. Adam slapp svo sannarlega með skrekkinn eftir glannalega taflmennsku en mögulega gætu þessu úrslit komið í bakið á Óskari þegar líður á mótið!

Bárður Örn hefur kannski ekki farið með himinskautum það sem af er móti en gert nóg til að vera í baráttunni. Hann hafði svart í dag gegn Gauta sem hefur byrjað nokkuð vel en var fjarri sínu besta í dag, valdi máttlaust afbrigði gegn franskri vörn og Bárður fékk alltof auðveldlega þægilegt endatafl sem hann gat teflt upp á tvö úrslit. Úrslitin að þessu sinni voru sigur á svart!
Björn Hólm hélt sér einnig í toppbaráttunni með sigri með svörtu mönnunum en Björn mætti Mikael Jóhanni Karlssyni. Í miðtaflinu átti sér stað ótrúleg atburðarás eftir 16. leik svarts 16…Bf6
Á einhvern ótrúlegan hátt ákvað hvítur að leika 17.Hfd1? í stað 17.Hd2 sem hlýtur að vera bara jafnt tafl. Svartur tók að sjálfsögðu skiptamuninn, 17..Bxd4 18.Hxd4 og hér eru ýmsir góðir leikir, t.d. 18…De7 eða 18…Dc7. Svartur valdi 18…Rf6??
Á einhvern ENN ótrúlegri hátt er hvítur með unnið tafl hér eftir 19.De5! þar sem 19…De7 er svarað með 20.Hg4!! og gangi svörtum bara allt í haginn! Hvítur missti af þessu og lék 19.Dc2? og eftir það var skákin bara spurning um smá tiltekt fyrir svartan!
Ótrúlegar senur!!
Loks náði Markús Orri Óskarsson mikivægum sigri gegn Birki þar sem leppun á c-línunni reyndist afdrífarík!
Helstu úrslit 6. umferðar
Óskar Víkingur Davíðsson – CM Adam Ómarsson ½–½
Gauti Páll Jónsson – FM Bárður Örn Birkisson 0–1
Mikael Jóhann Karlsson – CM Björn Hólm Birkisson 0–1
Markús Orri Óskarsson – Birkir Hallmundarson 1–0
FM Sigurbjörn Björnsson – Þorsteinn Jakob F. Þorsteinsson ½–½
Josef Ómarsson – Örvar Hólm Brynjarsson ½–½
Pétur Úlfar Ernisson – Haukur Víðis Leósson 1–0
Sigurbjörn Hermannsson – Guðmundur Peng Sveinsson 1–0
Markús Orri Jóhannsson – Ingvar Wu Skarphéðinsson 1–0
Halldór Pálmi Bjarkason – Stefán Orri Davíðsson ½–½
Stefán Steingrímur Bergsson – Haraldur Baldursson 1–0
Nirvaan Halldórsson – Egill Steinar Ágústsson 1–0
Mikið um skemmtilegar skákir og úrslit. Hörku ungmenna-uppgjör hjá Pétri og Hauki þar sem allt gat gerst en Pétur kláraði dæmið að lokum.

Staða efstu manna eftir 6 umferðir
Óskar Víkingur Davíðsson – 5 vinningar
CM Adam Ómarsson – 4,5 vinningar
FM Bárður Örn Birkisson – 4,5 vinningar
CM Björn Hólm Birkisson – 4,5 vinningar
Markús Orri Óskarsson – 4,5 vinningar
Gauti Páll Jónsson – 4 vinningar
Pétur Úlfar Ernisson – 4 vinningar
Sigurbjörn Hermannsson – 4 vinningar
Mikael Jóhann Karlsson – 3,5 vinningar
Birkir Hallmundarson – 3,5 vinningar
FM Sigurbjörn Björnsson – 3,5 vinningar
Þorsteinn Jakob F. Þorsteinsson – 3,5 vinningar
Josef Ómarsson – 3,5 vinningar
Örvar Hólm Brynjarsson – 3,5 vinningar
Markús Orri Jóhannsson – 3,5 vinningar
Að loknum sex umferðum er Óskar Víkingur Davíðsson enn efstur með 5 vinninga en toppurinn hefur myndað mikinn þéttleika og miklar sviptingar framundan!
Helstu viðureignir 7. umferðar
CM Björn Hólm Birkisson – Óskar Víkingur Davíðsson
FM Bárður Örn Birkisson – Markús Orri Óskarsson
CM Adam Ómarsson – Gauti Páll Jónsson
Pétur Úlfar Ernisson – Sigurbjörn Hermannsson
FM Sigurbjörn Björnsson – Markús Orri Jóhannsson
Þorsteinn Jakob F. Þorsteinsson – Mikael Jóhann Karlsson
Birkir Hallmundarson – Josef Ómarsson
Skemmtilegar viðureignir framundan, ákveðin kynslóða uppgjör á efstu þremur borðunum.
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar (15 mínútna seinkun)
Alls taka 34 skákmenn í mótinu og eru 6 skákir sýndar beint í hverri umferð. Stighæstir keppenda eru FIDE-meistararnir Sigurbjörn Björnsson og Bárður Örn Birkisson.


















