Sunnudaginn 12. júlí heldur Skákskóli Íslands í samstarfi við Gauta Pál Jónsson skákkennara, námskeið fyrir börn á Egilsstöðum.
Eftir námskeiðið verður haldið opið skákmót í Egilsstaðaskóla. Mótið stendur frá 16:00-18:00.
Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 5+3. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Þess má geta teflt verður á föstudeginum 10. júlí á Akureyri og á laugardeginum 11. júlí á Raufarhöfn, en þau mót verða kynnt í vikunni. Það er því gráupplagt fyrir skákmenn sem eru á ferð og flugi um Norður- og Austurland þessa helgi að taka þátt í þessum mótum!
Listi yfir þegar skráða verður birtur á chess-results þegar nær dregur.
Skákmenn á Austurlandi eru að sjálfsögðu hvattir til þátttöku!
Þátttökugjöld:
Fullorðnir: 1000kr. Börn: 500kr. Frítt fyrir börn sem tóku þátt í námskeiðinu.
















