Ólympíufarinn Helgi Ólafsson er að fara á sitt 21. ólympíuskákmót og er fyrsti meðlimur liðsins í opna flokknum til að skila af sér.
Nafn og hlutverk
Helgi Ólafsson liðstjóri Íslands í Opna flokknum
Gukesh eða Sindarov?
Ef spurt er um hvor vinni einvígið þá virðist Sindarov sigurstranglegri
Félag?
Taflfélag Vestmannaeyja
Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?
Pass. Af skiljanlegum ástæðum.
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Það er öðru vísi álag á liðsstjóra en liðsmanni. Ég hreyfi mig reglulega, vakna snemma og set mig inn í verkefni dagsins.
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?
Manchester City.
Bókin á náttborðinu?
Hjartað býr enn í helli sínum.
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
20 sinnum
Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?
Taflborð
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
A spy among friends, sem fjallar um The Cambridge five.
Hversu leiðinleg er rapptónlist?
Hlusta ekki mikið á rapp en þetta tónlistarform getur verið skapandi.
Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?
Ég ætla bara að vitna í Jón L. Árnason: þetta eru allt vinir mínir.
Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?
Getur það verið 3. sæti?
Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?
Hef ekki hugmynd.
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Usbekistan í Opna flokknum. Kínverjar í kvennaflokki.
Buettner, Rosenstein eða Turlov?
Hver er spurningin?
Uppáhaldsskák?
Þær eru margar en um daginn var ég að fara yfir sigurskák gegn Tony Miles í Las Vegas árið 1997. Hún var held ég 87 leikir.

Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?
Já.
Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?
Mér hafa alltaf fundist 11 umferðir of stutt og kunni betur við kerfið þegar tefldar voru 14 umferðir og fjöldi vinninga réðu endanlegri niðurstöðu.
Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?
Á enga sérstaka fyrirmynd.
Þitt markmið á mótinu?
Bæta árangur frá síðasta móti.
Að lokum?
Áfram Ísland!
————-
Ólympíufararnir
Opinn flokkur
- GM Vignir Vatnar Stefánsson
- IM Hilmir Freyr Heimisson
- GM Jóhann Hjartarson
- GM Hannes Hlífar Stefánsson
- GM Guðmundur Kjartansson
- GM/FST Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
Kvennaflokkur
- WGM Lenka Ptácníková
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- WFM Guðrún Fanney Briem
- WCM Iðunn Helgadóttir
- Hrund Hauksdóttir
- FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Aðrir
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti SÍ
- IA Jón Úlfur Hafþórsson, skákstjóri
- Gunnar Björnsson, dindill

















