Ísland

Laugardaginn 26. janúar verður Skákdagurinn haldinn hátíðlegur um allt land. Teflt verður í skólum, vinnustöðum, heitum pottum, kaffihúsum, dvalarheimilum og leikskólum.
Skákdagurinn 2019 er tileinkaður Friðrik Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga og fv. forseta Alþjóða skáksambandsins. Friðrik verður 84 ára á Skákdaginn sjálfan. Hann var eitt sinn meðal bestu skákmanna heims, teflir enn reglulega og gefur af sér til yngri kynslóða.
Skáksambandið hvetur allt til að taka þátt í Skákdeginum 2019!
Meðal þegar ákveðinna viðburða í kringum Skákdaginn má nefna:
- Gangamót í Laugalækjarskóla 21.–25. janúar
- Skáknámskeið í Vestmannaeyjum – 22.-25. janúar
- Teflt um Friðriksbikarinn hjá Korpúlfum – 24. janúar
- Kynslóðamót Skákskólans – 24. janúar
- Skólakeppni á Suðurlandi – 25. janúar
- Fjöltefli Smára Rafns í Grunnskólanum í Ísafirði – 25. janúar
- Árdegismót í KR – 26. janúar
- TORG-mót Fjölnis – 26. janúar
- Skákdagsmót á Akureyri – 26. janúar
- Mótaröð Laufásborgar – 26. og 27. janúar. Friðrik Ólafsson setur mótið.
- Sjöunda umferð á Skákþingi Reykjavíkur – 27. janúar
- Hjörvar með fjöltefli í Kerhólaskóla í Gríms- og Grafningshreppi 28. janúar
- Kappteflið um Friðrikskónginn hjá KR – 28. janúar
- Afmælismót Magga Pé hjá Ásum – 29. janúar
- Fjórða umferð á Skákhátíð MótX – 29. janúar
- Skákdagur í frístund Landakotsskóla – 30. janúar
- Totyota-mót eldri borgara – 1. febrúar
Tilkynningar um viðburð í kringum Skákdaginn sem og myndir/frétt að viðburði loknum mega endilega berast á frettir@skaksamband.is
Með skákkveðju,
Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands s:820-6533
Stefán Bergsson, framkvæmdastjóri Skákakademíu Reykjavíkur s:863-7562
Helgi Ólafsson, stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands s:698-9659










