Kramnik að tafli gegn Carlsen Mynd: Alina l'Ami/Tata Steel Chess.

Heimsmeistarinn, Magnús Carlsen (2835) gerði jafntefli við Vladimir Kramnik (2777) í 4. umferð Tata Steel-mótsins í Wijk aan Zee í gær.  Hans 21. jafntefli í röð! Þar með virðist heimsmeistarinn hafa slegið óopinbert heimsmet sem Anish Giri og Ding Liren áttu fyrir.

Anish Giri (2783) og Vidit Gujrathi (2695) unnu sínar skákir en öðrum skákum lauk með jafntefli. Þeir eru í 2.-5. sæti ásamt Ding Liren (2813) og Vishy Anand (2773). Ian Nepomniachtchi (2763) er efstur með 3 vinninga. Heimsmeistarinn er í 6.-10. sæti með 2 vinninga.

Fimmta umferð hefst núna kl. 13.  Þá teflir Carlsen við Jorden Van Foreest (2612) sem er neðstur ásamt Kramnik.

- Auglýsing -