Magnús Carlsen (2835) og Anish Giri (2783) eru efstir og jafnir með 7½ vinning að lokinnni 11. umferð Tata Steel-mótsins í Sjávarvík í Hollandi. Heimsmeistarinn gerði jafntefli við Teimor Radjabov (2757) í gær en Hollendingurinn hafði betur gegn Sam Shankland (2725). Lok þeirrar skák vöktu athygli en Bandaríkjamaðurinn gafst upp í jafnteflisstöðu!
Shankland gafst upp þar sem hann sá að riddarinn á h3 væri að falla. Hann áttaði sig hins vegar ekki á því að komi hann kóngnum á c8 er engin leið fyrir hvítan að vinna þrátt fyrir liðsmuninn.
Tóflta og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Carlsen teflir við Duda (2738) en Giri mætir Radjabov. Umferðin hefst kl. 12:30.
Staðan

Nánar á Chess.com
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (oftast kl. 12:30)
- Auglýsing -
















