Friðrik teflir við Petroian í Moskvu árið 2971.

Í dag, laugardaginn 26. janúar, er Skákdagur Íslands. Skákdagurinn er tileinkaður Friðriki Ólafssyni sem fagnar 84. afmælisdegi sínum í dag. Margt hefur verið í gangi í kringum Skákdaginn og á ritstjóri Skák.is margar fréttir um viðburði Skákdagsins á lager sem munu birtast næstu daga.

Á Skákdaginn sjálfan er ýmislegt um að vera. Akureyringar halda Skákdagsmótið í Brekkuskóla og hefst það kl. 10.

KR-ingar halda árdegismót sem hefst kl. 10:30. Teflt er heiðurs Friðriki.

Kl. 11 hefst TORG-skákmótið í Rimaskóla.

kl. 13:30 hefst annað mótið í mótaröð Laufásborgar. Friðrik Ólafsson mun setja mótið.

Helstu viðburðir Skákdagsins

Tilkynningar um viðburð í kringum Skákdaginn sem og myndir/frétt að viðburði loknum mega endilega berast á frettir@skaksamband.is

- Auglýsing -