Héðinn Briem og Gauti Páll undirbjuggu sig vel fyrir mótið og flytja inn um 80 skákstig í íslenskt skákhagkerfi. Mynd: Elvar Örn.

Norðurlandamótið í skák hefst í Sarpsborg í Noregi í dag. Tveir íslenskir fulltrúar taka þátt. Annars vegar stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson og hins vegar Lenka Ptácníková. Þau tefla bæði í opnum flokki en efsta konan verður Norðurlandameistari kvenna og þar hefur Lenka titil að verja. Helgi er nr. 7 í stigaröð keppenda en sigurvegarinn ávinnur sér rétt til að tefla á heimsbikarmótinu í skák (World Cup) sem fram fer í Khanty Manskiesk í haust.

Keppendalistann má nálgast hér. Umferðin hefst kl. 15 og vonandi verða bæði Helgi Áss og Lenka í beinni útsendingu. Tvær umferðir fara fram á morgun. Pörun fyrstu umferðar er óbirt þegar þessi texti er birtur.

Heimasíða mótsins.

HSG-mótið hófst fyrr í morgun. Það er hrað-kappskákmót. Tefldar eru sex kappskákir og meðal keppenda eru Erwin L´Ami og Loek van Wely. Þrír íslenskir keppendur taka þátt en það eru Gauti Páll Jónsson, Elvar Örn Hjaltason og Héðinn Briem. Beinar útsendingar virðast vera í ólagi.

Heimasíða mótsins. 

 

 

- Auglýsing -