Magnús var kátur eftir skák dagsins. Frekar vegna sigurisins væntanlega en yfir skákstyrjöldunni sem nú ríkir í Noregi. Mynd: Lennart Ootes / Grand Chess Tour

Það gekk á ýmsu í sjöttu umferð Grand Chess Tour sem fram fór í gær í Zagreb í Króatíu. Fimm skákum af sex lauk með hreinum úrslitum. Heimsmeistarinn, Magnús Carlsen (2875), vann Nakamura (2754) eins og svo oft áður. Ding Liren (2805) lagði Ian Nepomniachtchi (2775) að velli.

Úrslit 6. umferðar

Magnús er efstur með 5 vinninga ásamt Nepo og Wesley So (2754) sem hafði sigur á Mamedyarov (2774).

Staðan eftir 6. umferð

Ítarlega umfjöllun má finna á Chess.com.

Sjöunda umferð fer fram á morgun. Þá mætast Nepo og Carlsen.

- Auglýsing -