Gunnar Björnsson. Mynd: Ómar Óskarsson

Evrópumót landsliða fer fram 24. október – 2. nóvember nk. í Batumi í Georgíu. Ísland sendir lið í opnum flokki. Lið Íslands skipa Hannes Hlífar Stefánsson, Bragi Þorfinnsson, Guðmundur Kjartansson, Helgi Áss Grétarsson og Dagur Ragnarsson. Dagana fram að keppni verða EM-fararnir kynntir til leiks en alls skipa íslensku sendisveitina átta manns.

Í dag kynnum við til leiks Gunnar Björnsson, forseta Skáksambands Íslands

Nafn 

Gunnar Björnsson

Hlutverk 

Fer með stærsta hluta hópsins út þann en ferðalagið hefst á BSÍ kl. 21:30 þann 21. október. Sæki bæði stjórnarfund og þing Evrópaska skáksambandsins. Verð strákunum innanhandar á meðan ég verð í Batumi en ég fer af vettvangi að kvöldi 26. október.

Hver kenndi þér að tefla?

Byrjaði að tefla í kringum einvígi Spassky og Hort árið 1977. Ætli það hafi ekki verið pabbi og bróðir minn.

Fischer, Kasparov eða Carlsen?

#Team Carlsen.

Verður Liverpool loks enskur meistari næsta vor?

Já! Að hafa verið Liverpool-aðdáandi í 45 ára hefur styrkt mann sem einstakling. Maður hefur þurft að upplifa ýmsilegt. Öldur og öldudali. Síðustu árum hefur því fylgt endalaus hamingja sem ég er viss um að nái nýjum hápunkti í maí 2020!

Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir EM landsliða?

Alls konar utanumhald fyrir liðið.

Nefndu önnur lönd auk Georgíu sem eiga landamæri að Svartahafinu? (bannað að nota Google!)

Samkvæmt mínu minni eru það: Tyrkland, Rúmenía, Búlgaría, Úkraína og Rússland. Hef líka verið það heppinn að sjá svör frá öðrum áður en ég svaraði!

Hversu oft hefur þú farið á EM landsliða?

Fór fyrst með liðinu 2007 sem liðsstjóri. Síðan þá hef ég ávallt farið að 2009 undanskyldu. Þetta er því sjötta mótið sem ég fer á.

Minnisstæðasta atvik í miðri skák

Ég var skákstjóri á EM 2011. Victor Korchnoi, sem var átrræður, tefldi á öðru borði fyrir Sviss sem mætti Wales. Eftir tímamörkin átti Waler-verjinn, Tim Kett, leik og var að hugsa. Viktor horfði á hann grimmum augum og sagði svo hátt og snjallt á tíma andstæðingsins. „I think it´s the right time for you to resign“. Kett varð mjög ráðvilltur á svipinn en fylgdi svo ráðum Korchnoi og rétti út hendina til merkis um uppgjöf.

Hver verður næsti áskorandi Magnúsar?

Tja -verður maður ekki að giska á Ding Liren og flestir aðrir. Virðist vera heitastur.

Hver eru þín markmið á mótinu?

Að hjálpa til að liðinu líði sem best. Á þinginu mun ég hafi hagsmuni Íslands að leiðarljósi. Þar er kosið um framtíðarmótsstaði fyrir Evrópumót. Það skiptir okkur máli.

Eitthvað að lokum?

Gens Una Sumus

- Auglýsing -