Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák 2021

    0
    1867
    Hvenær:
    11. desember, 2021 @ 13:00 – 16:00
    2021-12-11T13:00:00-01:00
    2021-12-11T16:00:00-01:00
    Hvar:
    Landsbankinn
    Austurstræti 11
    101 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Friðriksmót Landsbankans - Íslandsmótið í hraðskák 2021 @ Landsbankinn | Reykjavík | Ísland

    Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák – fer fram í útibúi Landsbankans við Austurstræti 11 laugardaginn 11. desember nk. Mótið hefst kl. 13.

    Flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar taka þátt. Tímamörkin eru 3+2 og tefldar eru 10 umferðir.

    Vegna samkomutakmarkana er ekki hægt að hafa mótið opið fyrir alla. Þess í stað er miðað við að u.þ.b. 40 keppendur taki þátt. Verði samkomutakmörkunum breytt fyrir mótsbyrjun kann fyrirkomulaginu að vera breytt.

    Keppnisrétt hafa:

    1. Skákmenn með meira með 2200 hrað- og/eða kappskákstig
    2. Kvennalandsliðskonur
    3. U25-landsliðshópurinn
    4. Íslandsmeistarar í eftirfarandi aldursflokkum (y65, u22, u16, u14, u12)
    5. Átta-tíu efstu keppendur á 2000-móti TR (opið fyrir alla) sem fram fer miðvikudaginn, 8 desember og falla ekki undir liði 1-4

    SKRÁNING

    Skráning fer eingöngu fram á Skák.is (guli kassinn til hægri).  Skráningu lýkur miðvikudaginn, 8. desember kl. 16:00 fyrir þá sem uppfylla skilyrði 1-4.

    AÐALVERÐLAUN

    1. 100.000 kr.
    2.   60.000 kr.
    3.   50.000 kr.
    4.   30.000 kr.
    5.   20.000 kr.

    Séu tveir eða fleiri jafnir í efsta sætinu verður stigaútreikningur* látinn ráða Íslandsmeistaratitlinum. Verðlaunafé skiptist eftir Hort-kerfinu. Aðeins verða veitt verðlaun til fimm efstu manna eftir stigaútreikning.

    AUKAVERÐLAUN 

    • Besti árangur miðað við eigin skákstig
    • Kvennaverðlaun

    Nánari útfærsla á aukaverðlaunum væntanleg.

    Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

    Þar sem áhorfendur verða ekki leyfilegir á skákstað verður boðið upp á beinar útsendingar.

    FYRRI SIGURVEGARAR

    • 2020 – Hjörvar Steinn Grétarsson
    • 2019 – Jón Viktor Gunnarsson og Helgi Áss Grétarsson
    • 2018 – Jóhann Hjartarson
    • 2017 – Hannes Hlífar Stefánsson
    • 2016 – Jóhann Hjartarson
    • 2015 – Þröstur Þórhallsson
    • 2014 – Héðinn Steingrímsson
    • 2013 – Helgi Ólafsson
    • 2012 – Bragi Þorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Jón Viktor Gunnarsson
    • 2011 – Henrik Danielsen
    • 2010 – Jón Viktor Gunnarsson og Þröstur Þórhallsson
    • 2009 – Héðinn Steingrímsson
    • 2008 – Helgi Ólafsson
    • 2007 – Héðinn Steingrímsson
    • 2006 – Helgi Áss Grétarsson
    • 2005 – Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson
    • 2004 – Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson

    *Mótsstig reiknast svo

    1. Buchols -1
    2. Buchols
    3. Sonneborn-Berger
    4. Innbyrðis úrslit
    5. Flestir sigrar
    - Auglýsing -