Hraðskákkeppni taflfélaga 2019

    0
    1959
    Hvenær:
    31. ágúst, 2019 @ 13:00 – 16:00
    2019-08-31T13:00:00+00:00
    2019-08-31T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Rimaskóli
    112 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    10000
    Tengiliður:
    Sigurbjörn Björnsson
    6951680
    Hraðskákkeppni taflfélaga 2019 @ Rimaskóli | Reykjavík | Ísland
    Hraðskákkeppni taflfélaga verður haldin í Rimaskóla 31. ágúst og hefst keppni kl. 13:00.
    Tefldar verða 2×7 umferðir eftir svissnesku kerfi og verða tímamörkin 3 2. Hver sveit er skipuð 6 mönnum auk varamanna. Hvert félag má senda eins mörg lið til leiks eins og þau vilja en þó áskilja mótshaldarar sér rétt til að takmarka fjölda aukaliða ef skráning er þeim mun meiri. Mótsgjald er 10.000 krónur á lið. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.Varamenn koma ávallt inn á neðsta borð og þarf lið að vera eins skipað í báðum skákum hverrar umferðar. Það lið sem hlýtur flesta vinninga er Íslandsmeistari skákfélaga í hraðskák 2019 og verði tvö lið jöfn er einföld umferð tefld til úrslita um titilinn (dregið um lit á borði eitt og sitthvor liturinn á næstu borðum).

    Skákdeild Fjölnis sér um mótshaldið og hvetjum við sem flest lið til að skrá sig til leiks!

    Upplýsingar um þegar skráðar sveitir má finna hér.

    - Auglýsing -