Skráning
Setja í mitt dagatal
Hvenær:
7. desember, 2019 @ 13:00 – 19:00
2019-12-07T13:00:00+00:00
2019-12-07T19:00:00+00:00
Hvar:
Garðaskóli
Vifilsstaðavegur V.
210 Garðabær
Ísland
Vifilsstaðavegur V.
210 Garðabær
Ísland
Gjald:
10000

Íslandsmót Unglingasveita 2019 verður haldið þann 7. desember næstkomandi í Garðalundi í Garðabæ. (Garðaskóli). Mótið hefst kl. 13 og stendur líklega fram til 17. Umhugsunartími eru 10 mínútur + 5 sek á mann. Mótið er liðakeppni Taflfélaga og eru 4 í hverju liði auk varamanna.
Reglugerð mótsins má finna á vefnum skaksamband.is http://www.skaksamband.is/?c=webpage&id=249
Þátttökurétt hafa öll taflfélög sem og/eða íþrótta/héraðssambönd svo framarlega að ekki er taflfélag á sama svæði.
Skráning fer fram í gegnum Google form: Skráningarform
Skákstjóri er Páll Sigurðsson
Benda ber sérstaklega á
- að sameinuð lið geta ekki orðið Íslandsmeistarar
- hverju liði skal fylgja liðsstjóri sem sér um liðið og að fylla út öll úrslit í mótinu. Hver liðsstjóri skal ekki stýra meira en 2 liðum
- Þátttökugjöld eru 6.000 kr. fyrir A lið og 3.000 kr. Fyrir hvert lið eftir það. Hámarksgjald fyrir félag er 20.000 kr.
- Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. Fæðingardagar þeirra keppenda sem eru ekki á skákstigalista þurfa fylgja með skráningu.
Íslandsmeistarar 2018 voru Breiðablik Bolungarvík og Reykjanesbær, sem unnu bæði keppni A og B liða.
- Auglýsing -