Skákþing Norðlendinga 2021

    0
    893
    Teflt er á Kaffi Krók.
    Hvenær:
    12. nóvember, 2021 @ 19:00 – 14. nóvember, 2021 @ 16:30
    2021-11-12T19:00:00-01:00
    2021-11-14T16:30:00-01:00
    Hvar:
    Kaffi Krókur
    Aðalgata 16
    550 Sauðárkrókur
    Ísland
    Gjald:
    2000
    Tengiliður:
    Jón Arnljótsson
    8653827
    Skákþing Norðlendinga 2021 @ Kaffi Krókur | Sauðárkrókur | Ísland

    Skákþing Norðlendinga verður haldið á Kaffi Krók á Sauðárkróki 12. til 14. nóvember og hefst taflmennskan kl. 19.00, föstudagskvöldið 12. og verða þá telfdar 4 umferðir atskáka með 25 mín. umhugsunartíma. Á laugardag verða telfdar 2 kappskákir 90 mín. + 30 sek. á leik og er sú fyrri kl. 10.00 og sú seinni kl. 16.00. Þriðja kappskákin er svo kl. 10.00 á sunnudag og að henni lokinni Hraðskákþing Norðlendinga, líklega um kl. 14.00. Þátttökugjald er kr. 2000, en ekkert í hraðskákmótið.

    Fyrstu verðlaun verða kr. 50.000, önnur 35.000, þriðju 20.000, fjórðu 15.000 og aukaverðlaun til efsta manns undir 1800 stigum, 10.000. Peningaverðlaun skiftast milli þeirra sem fá jafn marga vinninga. Titilinn Skákmeistari Norðlendinga getur aðeins hlotið sá sem á lögheimili á Norðurlandi og ræður þá stigaútreikningur verði menn jafnir að vinningum.

    Þegar skráðir keppendur: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1iliNl30AS8_1_vLUt_XpssrnQyueH6R2d42kbEZA4KU

    - Auglýsing -