Sumarsyrpa TR 2025 #3

    0
    617
    Hvenær:
    8. ágúst, 2025 @ 17:30 – 10. ágúst, 2025 @ 18:00
    2025-08-08T17:30:00+00:00
    2025-08-10T18:00:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Sumarsyrpa TR 2025 #3 @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Helgina (8-10.ágúst) fer fram þriðja mót í Sumarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er þriðja mótið af 3 sem haldið er þetta sumar. Tefldar verða 7 skákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur Faxfeni 12.

    Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla á “alvöru mótum” einkum staðið til boða að taka þátt í opnum mótum. Þar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk þess sem mörgum börnum óar við tilhugsuninni um að tefla við fullorðna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan (og nú Sumarsyrpan!) er svarið við því. Þessi mótaröð TR er ekki síður sniðin að þörfum þeirra barna sem dreymir um að næla sér í sín fyrstu skákstig.

    Einungis börn á grunnskólaaldri (fædd árið 2009 eða síðar) sem ekki hafa náð 1800 alþjóðlegum skákstigum geta tekið þátt í mótum Bikarsyrpunnar. Þannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta þess betur að tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíðkast á hefðbundnum kappskákmótum fullorðinna. Mótin uppfylla öll skilyrði Alþjóða skáksambandsins FIDE og eru reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.

    Í mótunum eru tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.

    Dagskrá mótsins:

    1. umferð: kl. 17.30 (fös)
    2. umferð: kl. 10.00 (lau)
    3. umferð: kl. 13.00 (lau)
    4. umferð: kl. 16.00 (lau)
    5. umferð: kl. 10.00 (sun)
    6. umferð: kl. 13.00 (sun)
    7. umferð: kl. 16.00 (sun)

    Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni 7. umferð hvers móts.

    Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu.

    Hugsunin á bakvið yfirsetu að ef maður kemst ekki í einhverja umferð í fyrri hluta móts (í þessi tilviki umferðir 1.-5)  þá er samt hægt að taka þátt í mótinu.

    Merkja skal við fyrirhugaðar yfirsetur í neðangreindu skráningarformi. Annars skal tilkynna skákstjóra um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan.

    Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 15 mínútum eftir að viðkomandi umferð hefst.

    Þátttökugjald í mótið er 2.000kr. Börn sem eru félagar í TR greiða 1.000 Kr.

    Systkinaafsláttur er 25%

    Hægt er að greiða á staðnum með posa eða millifæra á reikninginn: 0101-26-640269 Kennitala: 640269-7669

    Tilkynning á taflfelag@taflfelag.is Skýring: Bikarsyrpa

    Sigurvegari hvers móts sem og efsta stúlkan hljóta að launum bikar. Verðlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sæti og 3. sæti. Veglegur farandbikar verður veittur fyrir besta samanlagðan árangur í mótum sumarsins og þá gilda tvö bestu mótin af þremur. Þá verða veitt sérstök verðlaun fyrir besta samanlagðan árangur (tvö mót) fyrir börn sem eru félagar í TR, en það eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sæti gefur 5 einkatíma, 2. sæti gefur 3 einkatíma og 3. sæti gefur 2 einkatíma.

    Skráning fer eingöngu fram í gegnum skráningarform sem birtast á heimasíðu TR, taflfleag.is og á skak.is, þegar nær dregur mótunum. Hlökkum til að sjá ykkur!

    Skráningarform:

    Þegar skráðir keppendur:

    Hægt er að hafa samband á netfanginu: taflfelag@taflfelag.is

    - Auglýsing -