Aðalfundur SÍ fór fram í gær, 29. maí 2021. Ný lög og skáklög SÍ voru samþykkt. Gunnar Björnsson var endurkjörinn forseti til tveggja ára. Þorsteinn Þorsteinsson var kjörinn nýr heiðursfélagi SÍ.
Ný stjórn SÍ
- Gunnar Björnsson, forseti
- Agnar Tómas Möller
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Kristófer Gautason
- Stefán Steingrímur Bergsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þorsteinn Stefánsson
Þorsteinn Magnússon kemur inn í aðalstjórn úr varastjórn. Ný stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi næstu stjórnar.
Ný varastjórn SÍ
- Auðbergur Magnússon
- Lisseth Acevedo Mendez
- Andri Freyr Björgvinsson
- Tinna Kristín Finnbogadóttir
Lisseth, Andri og Tinna koma ný inn.
Tillögur laganefndar SÍ um ný lög og skáklög SÍ voru samþykkt óbreytt. Ný lög og skáklög SÍ má finna hér.

Þorsteinn Þorsteinsson, forseti SÍ 1984-86 var krýndur nýr heiðursfélagi SÍ fyrir störf sín í þágu skákhreyfingarinnar. Þorsteinn þakkaði sérstaklega heiðurinn sem honum væri sýndur.
Hörður Jónasson og Hjálmar Sigurvaldason fengu gullmerki SÍ fyrir starf sitt í þágu Vinaskákfélagsins fyrir fólk með geðraskanir. Jafnframt var tilkynnt að Sævar Bjarnason fengi gullmerki SÍ en hann átti ekki heimangengt á fundinn. Gullmerkið verður afhent Sævari við fyrsta tækifæri. Allir fengu þeir dúndrandi lófaklapp.

Fundagerð fundarins verður birt á næstunni.
Árskýrsla SÍ fyrir starfsárið 2020-21.









