Íslandsmót grunnskólasveita – stúlknaflokkar fara fram í stúkunni við Kópavogsvöll laugardaginn 27. janúar.
Það er Skákdeild Breiðabliks sem heldur mótið að þessu sinni.
Teflt verður í þrem flokkum.
Fyrsti og annar bekkur kl 11:00
Fimm umferðir með tímamörkunum 4+2.
Þriðji til fimmti bekkur kl 12:30
Sex umferðir með tímamörkunum 6+2.
Sjötti til tíundi bekkur kl 14:30
Sex umferðir með umhugsunartímanum 8+2.
Skákstjóri verður Ulker Gasanova.
Umferðafjöldi getur breyst með tilliti til fjölda þátttökusveita. Keppendur geta teflt upp fyrir sig, þ.e. með eldri sveit síns skóla, en þá ekki með annari sveit. Í hverri sveit skulu vera þrjú borð og varamenn mega vera allt að þrír. Engin takmörk eru á fjölda liða frá hverjum skóla.
Auk verðlauna til þriggja efstu sveitanna í hverjum flokki, þá verða veitt verðlaun til efstu b-sveitarinnar í hverjum flokki og efstu c/d/e sveitarinnar. Og að lokum verða veitt verðlaun til efstu landsbyggðarsveitarinnar í hverjum flokki.
Skákdeild Breiðabliks ráðgerir að koma upp sérstökum stúlknaæfingum í kjölfar mótsins og munu allir þátttakendur í mótinu geta mætt endurgjaldslaust á þær fram að sumarfríi.
Þátttökugjald á hverja sveit er 8.000 kr, en samt að hámarki 24.000 kr. á hvern skóla.
Frétt um úrslit mótsins á síðasta ári: https://skak.is/2023/02/01/rimaskoli-og-karnesskoli-islandsmeistarar-grunnskolasveita-i-stulknaflokki/
Skráningu lýkur kl. 16:00 fimmtudaginn 25. janúar.