Á aðalfundi Skáksambands Íslands sem fer fram laugardaginn 30. maí 2026 verða lagðar fram þrjár tillögur um breytingar á 5. grein skáklaganna (og tengdum greinum) sem fjalla um skipulag landsliðsflokks og mögulega nýs meistaraflokks Skákþings Íslands. Tillögurnar miða allar að því að breyta þátttökurétti í efsta flokki mótsins og sumar einnig þeim næstefsta.
Tillaga Gauta Páls Jónssonar, Kjartans Maack og Magnúsar Pálma Örnólfssonar
Umfangsmeiri tillaga frá Gauti Páli Jónssyni (TR), Kjartani Maack (TR) og Magnúsi Pálma Örnólfssyni (Dimon). Tillagan fjallar um 5. og 6. grein og miðar að því að breyta heildaruppbyggingu efstu flokka Skákþings Íslands.
Helstu breytingar:
- Endurskipulagning á landsliðsflokki og meistaraflokki.
- Breytingar á því hvernig efstu keppendur fara á milli flokka.
- Skýrari skilgreining á meistaraflokki sem aðal „styrkleikaflokki“.
- Tillagan inniheldur einnig nýjar reglur um val stjórnar og ýmis viðauka sem miða að því að auka sveigjanleika og jafnræði.
Tillagan er ítarleg og fylgir henni greinargerð með rökstuðningi fyrir breytingum á kerfinu fyrir Skákþing 2027 og áfram.
Tillaga Jóhönnu Bjargar
Forseti Skáksambands Íslands, Jóhanna Björg, leggur til að við 5. grein bætist tveir töluliðir:
- Íslandsmeistari kvenna frá árinu áður (ef hún hefur ekki þegar tryggt sér sæti með öðrum hætti) fái sæti í Meistaraflokki
- Ungmennameistari Íslands (ef hann/hún hefur ekki þegar tryggt sér sæti) fái sæti í Meistaraflokki.
Tillagan er sett fram sem breytingartillaga sem verður lögð fram ef tillaga Gauta og félaga verður samþykkt.
Tillaga Kristjáns Arnar Elíassonar og Þorsteins Þorsteinssonar
Kristján Örn Elíasson og Þorsteinn Þorsteinsson leggja til að Íslandsmeistari öldunga fái sama rétt og Íslandsmeistari kvenna og ungmennameistari Íslands.
- Breyting á 5. grein: Bæta „Íslandsmeistara öldunga frá árinu áður“ við listann yfir þá sem eiga rétt á þátttöku í landsliðsflokki.
- Breyting á 9. grein: Sigurvegari Íslandsmóts öldunga hlýtur nafnbótina Íslandsmeistari öldunga og rétt til þátttöku í landsliðsflokki árið eftir.
Flutningsmenn benda á að tillagan stuðli að auknu jafnræði milli Íslandsmeistaratitla óháð kyni og aldri. Þeir minna einnig á að margir sterkir íslenskir skákmenn séu komnir á efri árin og að Íslandsmeistarar öldunga séu oft stigaháir.
Aðalfundur SÍ
Aðalfundur Skáksambands Íslands 2026 fer fram laugardaginn 30. maí. Þar verður meðal annars kosið um stjórn (ekki forsetakjör) og tekin afstaða til framangreindra tillagna um skáklög.









