Nýjasti heiðursfélagi SÍ - Helgi Ólafsson ásamt forseta SÍ. Mynd: TTJ

Aðalfundur Skáksambands Íslands fór fram í gær, laugardaginn 30. maí, í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur.

Hápunktur fundarins var án efa sá að Helgi Ólafsson stórmeistari var gerður að heiðursfélaga SÍ. Hann er  annar íslenski stórmeistarinn sem fær þennan heiður.

Fundurinn var fjörlegur eins og oft áður á aðalfundum SÍ.

Helstu niðurstöður:

  • Skýrslur: Jóhanna Björg Jóhannsdóttir fór yfir skýrslu stjórnar, Björn Ívar Karlsson sagði frá starfi Skákskólans og Davíð Stefánsson ásamt Gunnari Björnssyni kynntu ársreikninga sambandsins.

  • Fjárhagsáætlun: Samþykkt var fjárhagsáætlun sem gerir ráð fyrir 2,5 milljóna króna tapi á starfsárinu 2026–2027. Þungt vegur undirbúningur og þátttaka í ólympíuskákmótinu í Úsbekistan sem verður afar kostnaðarsamt.

  • Árgjöld: Eftir langar og stundum heitar umræður var tillaga stjórnar um 3.500 kr. árgjöld á hvern virkan skákmann (í gegnum félögin) felld. Í staðinn var samþykkt varatillaga stjórnar um að rukka 4.500 kr. beint til virkra skákmanna. Þetta er lækkun frá 6.000 kr. í fyrra, en félögin fá í staðinn ekkert hlutfall af árgjöldunum.

  • Stjórn: Ný stjórn var sjálfkjörin.

    Forseti (2025–2027): Jóhanna Björg Jóhannsdóttir

    Aðalstjórn (2026–2027): Auðbergur Magnússon, Daði Ómarsson, Harald Björnsson, Tómas Tandri Jóhannsson, Unnar Rafn Ingvarsson, Þorsteinn Stefánsson.

    Varastjórn (2026–2027): Arnar Ingi Njarðarson, Eiríkur Björnsson, Hermann Aðalsteinsson, Lisseth Acevado Mendez.

  • Lagabreyting: Tillaga Gauta Páls, Kjartans Maack og Magnúsar Pálma um nýjan lokaðan meistaraflokk var samþykkt. Íslandsmeistari kvenna, Ungmennameistari Íslands og Íslandsmeistari öldunga fá keppnisrétt í meistaraflokknum. Fyrsti meistaraflokkurinn verður haldinn árið 2027.

Fundargerð fundarins liggur ekki fyrir.