Stjórn SÍ leggur til 3.500 kr. aðildargjöld á alla virka skákmenn 18 ára eldri. Gjöldin verði greidd af aðildarfélögum SÍ en ekki skákmönnunum sjálfum.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti SÍ, sendi eftirfarandi póst á forystumenn aðildarfélaga SÍ fyrr í dag.
Stjórn Skáksambands Íslands hélt nýverið sinn síðasta stjórnarfund á starfsárinu. Þar var farið yfir verkefni næstu mánaða sem og ýmis stefnumál sambandsins. Fundargerðin verður birt á heimasíðu Skáksambands Íslands á næstu dögum. [hér] Ég vil sérstaklega vekja athygli á tillögu stjórnar um aðildargjöld fyrir næsta starfsár. Tillagan, ásamt rökstuðningi stjórnar fyrir breytingunum, er hér að neðan. Við viljum hvetja til opinnar umræðu um málið og hvetjum ykkur eindregið til að hafa samband ef þið viljið ræða tillöguna frekar. Einnig getum við sent þau gögn sem stjórn aflaði frá skáksamböndum á Norðurlöndum varðandi sambærilegt fyrirkomulag.
Við þökkum félögunum fyrir gott samstarf og áframhaldandi stuðning við íslenskt skákstarf.
Tillaga að aðildargjöldum 2026-2027:
Stjórn Skáksambands Íslands leggur til að aðildargjöld sambandsins á árinu 2026 verði 3.500 kr. per virkan skákmann sem greiðist af aðildarfélögum Skáksambands Íslands. Aðildargjöldin renna að fullu til Skáksambands Íslands. Til virkra skákmanna teljast allir íslenskir skákmenn á keppendaskrá skáksambandsins, 18 ára og eldri, sem eru með virk kapp-, at- eða hraðskákstig þann 1. október 2026.
Rökstuðningur
Innheimta aðildargjalda Skáksambands Íslands árin 2024 og 2025 byggðist á 6.000 króna gjaldi á hvern virkan skákmann. Hluti gjaldsins rann til aðildarfélaganna í samræmi við innheimtuhlutfall hvers félags.
Helsta gagnrýni á þetta fyrirkomulag var að það torveldaði félögunum innheimtu eigin félagsgjalda, þar sem félagsmenn gátu ekki verið vissir um hversu stór hluti greiðslunnar rynni til félagsins sjálfs. Einnig var bent á að aðild að Skáksambandinu byggðist á aðild félaganna en ekki einstakra félagsmanna.
Í ljósi þess leggur stjórn Skáksambands Íslands til að aðildargjaldið verði lækkað og að það renni að fullu til sambandsins. Jafnframt verði gjaldið innheimt af aðildarfélögunum sjálfum, sem auðveldar þeim að ákveða og innheimta sín eigin félagsgjöld eftir því sem þau kjósa.
Þessi nálgun er í samræmi við fyrirkomulag aðildargjalda á öðrum Norðurlöndum, eins og kynnt var á samráðsfundi með formönnum félaga í vetur. Tillaga stjórnarinnar er þannig ætlað að bregðast við þeim athugasemdum sem komið hafa fram um núverandi fyrirkomulag.
Áætlanir stjórnar benda til þess að breytingin muni skila sambærilegum tekjum til Skáksambands Íslands og síðustu tvö ár.







