Íslandsmót ungmenna (u8–u16) fór fram í gær, 17. október, í Miðgarði í Garðabæ. Alls tóku 135 keppendur þátt í fimm aldursflokkum – metþátttaka og töluvert meira en undanfarin ár (97 keppendur árið 2025). Um fimmtungur keppenda voru stúlkur (um 28 stúlkur) sem er afar gott hlutfall í sögulegu ljósi. Nánast öll sterkustu ungmenni landsins tóku þátt.

U8 (fædd 2018 og síðar) – 31 keppandi

Tauras Nareika varð Íslandsmeistari. Hann vann flokkinn með fullu húsi.  Helgi Fannar Óðinsson varð annar með 6 vinninga og Jón Fenrir Ragnarsson þriðji með 5.

Sólveig Hólm Brynjarsdóttir varð Íslandsmeistari stúlkna átta ára og yngri.

Stúlkur:

  1. Sólveig Hólm Brynjarsdóttir (Breiðablik) – 3 v.
  2. Viktoria Robyn Roberts (TR) – 2 v.
  3. Emilia Karin Arnarsdóttir (TR) – 2 v.

Lokastaðan á Chess-Results

U10 (fædd 2016–2017) – 38 keppendur

Dagur Sverrisson  sigraði með fullu húsi og varð Íslandsmeistari. Ekki í fyrsta sinn! Eiður Jökulsson varð annar með 6 og Róbert Heiðar Skúlason þriðji með 5.

Alexandra Voron Aðalsteinsdóttir varð Íslandsmeistari stúlkna 10 ára og yngri.

Stúlkur:

  1. Alexandra Voron Aðalsteinsdóttir – 5 v.
  2. Miroslava Skibina – 4½ v.
  3. Praanvi Kandukuri – 4 v.

Lokastaðan á Chess-Results

U12 (fædd 2014–2015) – 38 keppendur

Haukur Víðis Leósson vann með fullu húsi. Nökkvi Már Valsson og Pétur Úlfar Ernisson urðu jafnir að vinningum í 2.–3. sæti með 5½. Nökkvi tók annað sætið eftir stigaútreikning.

Katrín Ósk Tómasdóttir varð Íslandsmeistari stúlkna 12 ára og yngri.

Stúlkur:

  1. Katrín Ósk Tómasdóttir – 4½ v.
  2. Þóra Kristín Jónsdóttir – 3 v.
  3. Jaagruthi Kalasthri – 2½ v.

Lokastaðan á Chess-Results

U14 (fædd 2012–2013) – 19 keppendur

Örvar Hólm Brynjarsson  vann með 6 vinningum. Tristan Fannar Jónsson  og Anh Hai Tran  urðu jafnir með 5. Tristan tók silfrið eftir stigaútreikning.

Halldóra Jónsdóttir varð Íslandsmeistari stúlkna 14 ára og yngri.

Stúlkur:

  1. Halldóra Jónsdóttir – 4½ v.
  2. Emilía Embla Berglindardóttir  – 4 v.
  3. Harpa Hrafney Karlsdóttir  4 v.

Lokastaðan á Chess-Results

U16 (fædd 2010–2011) – 9 keppendur

Jósef Omarsson vann með 6 vinningum af 7. Theódór Eiríksson  varð annar með 5½ og Ingi Hrafn Ýmisson þriðji með 5.

Lokastaðan á Chess-Results

Allir Íslandsmeistararnir fá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2027 í Hörpu auk vatnsbrúsa frá Heimilistækjum. Þrír efstu í öllum flokkum fengu verðlaunabikar og allir keppendur voru leystir út með glaðningi.

Skákstjórn önnuðust Páll Sigurðsson, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Iðunn Helga Helgadóttir, Auðbergur Magnússon, Daði Ómarsson, Lenka Ptácníková, Hrund Hauksdóttir og Harald Björnsson. Jóhanna Björg og Gunnar Björnsson sáu um undirbúning mótsins og héldu utan um það í samstarfi við Pál og Harald.

Skáksambandið vill þakka TG kærlega fyrir frábært samstarf í kringum mótshaldið og sérstakar þakkir til Garðabæjar að lána þessa glæsilegu aðstöðu undir mótið endurgjaldslaust.

Myndir Tómas Tandri