Einn fyrsti skákviðburður sem greinarhöfundur sótti var fjöltefli rússneska stórmeistarans Evgení Vasjúkov, sem lést á dögunum 85 ára að aldri, sem átti sér stað í Samkomuhúsinu í Vestmanneyjum fyrir 50 árum – í júní árið 1968 en þá var þriðja Reykjavíkurskákmótinu ný lokið – Fiske-mótinu eins og það er stundum kallað. Samkomuhúsið var líka kvikmyndahús og þar voru einnig haldin hrikaleg böll eins og ég átti eftir að kynnast síðar. Fjölteflið dró til sín eitthvað rúmlega 20 manns sem þótti víst hálfgert „skrap,“ eins og það var orðað enda hásumar og Eyjamenn höfðu flestir öðrum hnöppum að hneppa. Sem 11 ára áhugamanni og áhorfanda á staðnum fannst mér athyglivert að nokkrir náðu góðum úrslitum þarna. Einn besti skákmaður Eyjamanna, Arnar Sigurmundsson, sagði mér síðar að eftirá hefði Vasjúkov verið boðið í heimahús og fjallað þar um nýafstaðið mót og vart komst önnur viðureign að en sú sem hann háði við Friðrik Ólafsson. Friðrik tefldi glæfralega og glæsilega, hlaut 10 vinninga af 14 mögulegum, og varð einn í þriðja sæti, ½ vinningi á eftir Vasjúkov og Mark Taimanov. Með sigri í skákinni sem tefld var í þriðju umferð hefði hann sennilega orðið einn efstur:

Friðrik Ólafsson – Evgení Vasjúkov

Spænskur leikur

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O b5 6. Bb3 Bb7 7. He1 Bc5 8. c3 d6 9. d4 Bb6 10. a4 O-O 11. Bg5 h6 12. Bh4 He8 13. axb5 axb5 14. Hxa8 Bxa8 15. Dd3 exd4?

Arkhangelsk-afbrigðið var ekki mjög þróað á þessum árum og uppskipti á d4 oft hæpin í spænska leiknum. Vasjúkov sást yfir 17 leik Friðriks.

16. cxd4 g5 17. e5!

(Stöðumynd 1)

Hárbeittur leikur, hvítur hótar 18. Dg6+!

17. … Kf8 18. Rxg5! hxg5 19. Bxg5 dxe5 20. Dh3! Dd6 21. Dh6+ Ke7 22. Dg7!

Nú fellur riddarinn á f6 því ekki dugar að valda f7-peðið, 22. … Hf8 23. dxe5 Rxe5 24. Bxf6+ Dxf6 25. Hxe5+ og vinnur.

22. … Kd7 23. Bxf6 Kc8

Og nú vinnur 24. Bxf7! létt t.d. 24. … Dd4 25. Hf1! og hrókurinn á e8 á engan reit. Varla er hægt að skýra næsta leik Friðrik með öðru en tímahraki.

Stöðumynd 2

24. dxe5?? Db4!

Tvöfalt uppnám og taflið snýst algerlega við. Það sem eftir lifir skákar teflir Vasjúkov óaðfinnanlega.

25. Rd2 Dxd2 26. Hf1 Bxf2+! 27. Hxf2 De1+ 28. Hf1 De3+ 29. Kh1 Dxb3 30. h4 Rd4 31. Kh2 Dc2 32. Dg4 Kb8 33. Hf4 Re6 34. Hb4 Bc6 35. h5 Kb7 36. b3 Ha8 37. Dg3 Ha2 38. Hg4 Ha1 39. Hh4 Hf1 40. h6 Dc1 41. Dg4

– og gafst upp um leið, svartur mátar í tveim leikjum, 41. … Hh1+ 42. Kg3 De1 mát.

Meðan á Fiske-mótinu '68 stóð tókst góður vinskapur með Vasjúkov og Taimanov og nokkrum árum síðar hélt Vasjúkov sem aðstoðarmaður með Taimanov til Vancouver í Kanada þar sem þessi fjölhæfi maður mætti örlögum sínum í hinu fræga einvígi við Fischer. Eftir einvígið var rifjuð upp ferð Fischers með með systur sinni til Moskvu vorið 1958 er hinn 15 ára gamli Bandaríkjameistarinn sat og malaði menn í hraðskák í stærsta skáklúbbi Moskvuborgar. Þá var kallað eftir „aðstoð“ og þeir mættu í klúbbinn Vasjúkov og Tigran Petrosjan. Vasjúkov gekk illa í byrjun þó það hafi lagast þegar á leið en Tigran Petrosjan reyndist baneitraður í hraðskákinni og hafði mun betur þegar upp var staðið.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Skákþættir Morgunblaðsins eftir Helga Ólafsson birtast u.þ.b. viku síðar á Skák.is.

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 19. maí 2018

- Auglýsing -