Pólverjinn ungi, Jan-Krzysztof Duda (2737), byrjar best allra á ofurmótinu í Dortmund. Í gær vann hann landa sinn Radoslaw Wojtszek (2733). Duda hefur 2½ vinning eftir fyrstu þrjár umferðirnar.
Í öðrum viðureignum gærdagsins vann Ian Nepomniachtchi (2757) Liviu-Dieter Nisipeanu (2672) en Anish Giri (2782) teygði sig of langt til sigurs gegn Vladislav Kovalev (2655) og tapaði. Hr. Dortmund, Vladimir Kramnik (2792), gerði jafntefli við Georg Meier (2628) og hefur gert jafntefli í öllum sínum skákum.
Kovalev og Nepo eru í 2.-3. sæti með 2 vinninga. Stöðuna má finna hér.

Í fjórðu umferð, sem fram fer í dag, mætast meðal annars Kramnik og Duda.
Sjá nánar á Chess.com.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13:15)
- Auglýsing -
















