SKÁKDEILD KR efnir til sinnar árlegu skákhátíðar og SUMARMÓTS í Listaskálanum við Selvatn, fimmtudaginn 19. júlí nk. Spáð er blíðskaparveðri.
Mótið sem nú er haldið í 12. sinn verður að venju haldið með sérstöku viðhafnarsniði og mikið um dýrðir. Hátíðarkvöldverður frá Eldhúsi Sælkerans reiddur fram undir beru lofti, kaffi, svaladrykkir og kruðerí í boði á meðan á móti stendur.
Mótið sem er öllum opið hefst kl. 16.30 og stendur fram eftir kvöldi. Þátttaka takmarkast við að hámarki 40 keppendur og enn eru nokkur sæti laus. Þátttökugjald kr. 10.000. Tefldar verða 11 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma. Góð verðlaun og viðurkenningar fyrir efstu menn og útvalda.
Þeir sem hafa hug á að vera með tilkynni þátttöku sína sem allra fyrst með smáskilaboðum í síma 690-2000 (ESE). Þátttökugjald óskast greitt inn á reikning 115-26-47077, kt. 470776-0139 eða með reiðufé á mótsstað.
NOKKUR SÆTI LAUS – SJÁUMST OG KLJÁUMST OG NJÓTUM GÓÐA VEÐURSINS VIÐ FJALLAVATNIÐ FAGURBLÁTT.
Sjá nánar hér: https://skak.is/2018/07/03/1494/
















