Dagana 7.-15. júlí fór fram Heimsmeistaramót öldungasveita í flokkum 50+ og 65+ í Radubaul í Þýskalandi. Mestan spennan var í flokki 50 ára og eldri en svo fór að Bandríkjamenn höfðu sögur eftir harða baráttu við Englendinga. Skáksveit Bandaríkjanna skipuðu: Shabalov, Benjamin, Ehlvest, Yermolinsky og Kudrin. Ekkert smá lið.
Rússar höfðu hins vegar sigur í flokki skákmenna 65 ára og eldri. Þá sveit leiddi Evgeny Sveshnikov en aðrir liðsmenn voru Yuri Balashov, Nukhim Rashovsky, Vldaimir Zhelnin og Nokolai Pushkov.
Lokaúrslitin má finna hér.
Nánar um mótið á heimasíðu þess (á þýsku).
- Auglýsing -
















