Nona og Áskell við upphaf skákar. Mynd; Heimasíða mótsins.

Goðsögnin og fyrrum heimsmeistari kvenna, Nona Gaprindasvhili (2305) mátti teljast heppin að sleppa með jafntefli á móti Áskeli Erni Kárasyni (2217) í sjöundu umferð EM öldunga (65+) í gær. Nona reyndist slóttug í vörninni peði undir. Áskell hefur 4,5 vinninga og er í 2.-9. sæti. Áskell mætir Svíanum Gunnari Hedin (2179) í dag og er skákin nýhafin.

Ritstjóri fékk þessa vísu senda í gær:

Köld eru jafnan kvennaráð
af klókindum hafa þær vopn sín falið.
Að Gaprindasvíli sé gefin bráð
getur víst ekki nokkur talið.

Jóhannes Björn Lúðvíksson (2024) gerði jafntefli í sinni skák og hefur 3 vinninga. Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1715) sem teflir í kvennaflokki (50+) tapaði hins vegar.

- Auglýsing -