Dagur Ragnarsson (2391) endaði í 3.-4. sæti með 5½ vinning af 9 mögulegum á alþjóðlegu móti í Montreal í Kanada. Í gær kom 1½ vinningur í hús í lokaumferðunum tveim.
Frammistaða Dags samsvaraði 2372 skákstigum og lækkar hann um 3 stig fyrir hana.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14 og 19:30)
Riga Technical University Open
Alþjóðlegt mót hefst í Riga í dag og stendur til 11. ágúst. Níu umferðir tefldar á sjö dögum.
Fjórir íslenskir skákmenn taka þátt. Fulltrúar landands eru stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2412), alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2453) og skákmeistararnir Stefán Bergsson (2190) og Gauti Páll Jónsson (2057).
Fyrsta umferð hefst núna kl. 14.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 8, 12 og 14)
Summer Prague Open
Lenka Ptácníková (2089) og Sigurður Ingason (1796) taka þátt í opnum móti í Prag dagana 2. -9. ágúst.
Tvær umferðir fóru fram í gær. Lenka hlaut 1 vinning og Sigurður hálfan vinning. Lenka hefur 2 vinninga eftir 4 umferðir en Siggi hefur hálfan vinning. Fimmta umferð fer fram í dag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)
Berlin Open
Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1682) tók þátt í alþjóðlegu sjö umferða móti í Berlín dagana 1.-4. ágúst.
Sjöunda umferð fór fram í gær og endaði Sigurlaug með 2 vinninga. Frammistaða hennar var nánast á pari miðað við skákstig.
Split Open
Dagana 3.-11. ágúst fer fram alþjóðlega mótið Split Open í Króatíu. Helgi Pétur Gunnarsson (1740), Páll Þórsson (1725) og Iðunn Helgadóttir (1117) taka þátt.
Það gekk vel í gær. Helgi Pétur og Páll unnu og Iðunn gerði jafntefli við skákmann með 1768 skákstig. Sá brast ókvæða við.


















