Davíð Kjartansson fagnaði vel og lengi sigri á mótinu.

Í gær var skipt í tvo flokka í netskákinni og miðað við 2000 skákstig. Sú skipting virðist ekki hafa fallið í góðan farveg og þátttaka minni en oft áður. Víti að varast fyrir þá sem vilja fara þá leið á stórum innlendum mótum.

Alþjóðlegu meistararnir Davíð Kjartansson og Jón Viktor Gunnarsson urðu efstir og jafnir en Davíð hafði sigur á mótinu eftir oddastigaútreikning. FIDE-meistarinn, geðþekki, Don Róbert Lagerman varð þriðji.

Röð efstu manna (2000+)

  1. IM Davíð Kjartansson 4 v. af 5
  2. IM Jón Viktor Gunarsson 4 v.
  3. FM/IA/FT/IO Róbert Lagerman 3,5 v.
  4. FM Guðmundur Gíslason 3 v.
  5. Þráinn Ekdahl 2,5 v.
  6. Tómas Veigar Sigurðarson 2,5 v.

Lokastaðan og skákir mótsins

Röð efstu manna (-2000)

  1. Arnaldur Loftsson 7 v. af 9
  2. zyess 6,5 v.
  3. Desaii 6,5 v.
  4. Adam Omarsson 6,5 v.
  5. Arnljótur Sigurðsson 6 v.
  6. Elvar Sigurðsson 6 v.
  7. Óskar Haraldsson 6 v.
  8. Viðar Másson 6 v.
  9. Magnús Matthíasson 5,5 v.
  10. Ólafur Hlynur Guðmundsson 5,5.

Lokastaðan og skákir mótsins

Í kvöld fer fram Leifturskák að hætti Víkingaklúbbins. Taflmennskan hefst kl. 20.

Föstudaginn 27. mars kl. 20:00

Leifturskák að hætti Víkingaklúbbsins. 2+0 skákir í 90 mínútur (Arena mót)

Tengill: https://www.chess.com/live#r=173196

- Auglýsing -